Thelma Karen Pálmadóttir er í byrjunarliði Íslands gegn Úkraínu í undankeppni HM í kvöld. Þetta er hennar fyrsti byrjunarliðsleikur með landsliðinu og hennar þriðji landsleikur í heildina. Hún hefur spilað 20 mínútur með landsliðinu fyrir leikinn í kvöld.
Fyrir þá sem ekki vita, þá er Thelma Karen einn efnilegasti leikmaður sem hefur komið upp á Íslandi síðustu árin.
Fyrir þá sem ekki vita, þá er Thelma Karen einn efnilegasti leikmaður sem hefur komið upp á Íslandi síðustu árin.
Thelma Karen verður 18 ára gömul eftir nokkra daga en hún gekk í raðir Häcken í Svíþjóð eftir að hafa slegið í gegn með FH á síðasta tímabili. Hún spilaði sína fyrstu leiki í Bestu deildinni árið 2023 en hún blómstraði algjörlega á síðustu leiktíð og var einn besti leikmaður Bestu deildarinnar.
„Ég man ekki eftir svona efni," sagði Magnús Haukur Harðarson í Uppbótartímanum síðasta sumar þegar rætt var um Thelmu Karen.
„Thelma Karen, ég á eiginlega ekki til lýsingarorð."
„Hún virðist líka vera svo þroskuð, þegar maður horfir til dæmis á ákvarðanartökur," sagði Ásta Eir Árnadóttir jafnframt í þættinum.
Gat valið úr tilboðum
Thelma Karen gat valið úr tilboðum eftir tímabilið sem hún átti með FH en hún valdi að fara til Häcken sem er eitt besta liðið í Svíþjóð. Þar hefur hún fengið stórt hlutverk í liði sem er komið í úrslit Evrópubikarsins.
„Ég var kannski ekki alveg að búast við því að vera í svona stóru hlutverki strax en mér finnst það bara mjög fínt," sagði Thelma Karen í viðtali við Fótbolta.net á dögunum um fyrstu mánuðina í Häcken.
Það er ljóst að Thelma Karen er einn allra dýrasti leikmaður kvennaboltans. Í fyrra varð Fanney Inga Birkisdóttir sú dýrasta en Valur seldi landsliðsmarkvörðinn til Häcken eftir tímabilið 2024. Kaupverðið var samkvæmt heimildum Fótbolta.net um 12 milljónir króna.
Þess má geta að Thelma Karen var í byrjunarliði í fyrsta sinn í Bestu deildinni fyrir tæpum tveimur árum og núna er hún mætt í byrjunarlið landsliðsins í gríðarlega mikilvægum leik tveimur árum síðar.

