Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
ÍBV
ÍBV
Besta karla
Hásteinsvöllur
Nokkuð hvasst en þurrt.
0 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 151' Óskar Borgþórsson0 - 256' Gylfi Þór Sigurðsson
Dómari: Pétur Guðmundsson
Leik lokið!
Víkingar vinna 0-2 sigur!
Ekki fallegasti leikur sem ég hef séð en Víkingar sýndu meiri gæði og lokuðu örugglega 0-2 sigri. Viðtöl og skýrsla kemur síðar í dag!
94. mín
Tarik með sendingu frá hægri en Edeland setur boltann aftur fyrir og Víkingur fær hornspyrnu.
93. mín
Vel spilað hjá Jóahnnes og Elíasi Már. Elías kemst inn á teiginn og reynir að fara fram hjá Sigurði Arnari og fá að lokum horn.
91. mín
Elías með boltann fyrir utan teig Eyjamanna, fer fram hjá nokkrum leikmönnum ÍBV, kannski aðeins of mikið dútl og missir boltann að lokum.
Víkingur R.
90. mín
Gult spjald

Tarik Ibrahimagic

88. mín
Liam er kominn með boltann vinstri megin í teig Víkinga og reynir að koma boltanum á róbert sem kemur á hlaupinu en Ekroth kemur boltanum í burtu.
Víkingur R.
84. mín
InnTarik Ibrahimagic
ÚtGylfi Þór Sigurðsson
Víkingur R.
84. mín
InnJóhannes Kristinn Bjarnason
ÚtValdimar Þór Ingimundarson
Víkingur R.
84. mín
InnErlingur Agnarsson
ÚtÓskar Borgþórsson
82. mín
Arnar Breki reynir að senda Róbert ELís í gegn en Ekroth er fyrstur á boltann.
ÍBV
81. mín
Gult spjald

Alex Freyr Hilmarsson

Brýtur á Elíasi.
ÍBV
80. mín
InnArnar Breki Gunnarsson
ÚtBjarki Björn Gunnarsson
79. mín
Felix gerir vel hjá Eyjamönnum, vinnur boltann á vítateigslínunni og kemur svo með hættulega sendingu meðð jörðinni inn á teiginn en Víkingar ná að hreinsa.
78. mín
Óskar með skot fyrir utan teig en það er beint á Ara.
77. mín
Hætta inn á teig ÍBV
Helgi með góða sendingu inn á teig ÍBV frá vinstri og munaði litlu að Eyjamenn gerðu sjálfsmark. Þeir ná svo að koma boltanum í burtu.
76. mín
Víkingur fær hornspyrnu
Gylfi með skotið fyrir utan teig en Alex nær að koma sér fyrir og boltinn fer aftur fyrir. Ná ekki að gera sér mat úr horninu.
75. mín
Daníel tók spyrnuna og reyndi bara skotið en það er beint á Ara sem grípur boltann.
73. mín
Víkingur fær aukaspyrnu á fínum stað fyrir utan teig.
Víkingur R.
71. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtGunnar Vatnhamar
ÍBV
71. mín
InnAlex Freyr Hilmarsson
ÚtVicente Rafael Valor Martínez
ÍBV
71. mín
InnLiam Daði Jeffs
ÚtVitor Hugo Cruz Rocha
ÍBV
69. mín
Gult spjald

Vitor Hugo Cruz Rocha

67. mín
Frekar lítið að gerast síðustu mínútur..
Víkingur R.
63. mín
InnAron Elís Þrándarson
ÚtÁrmann Ingi Finnbogason
61. mín
Vicente með ágætis sendingu inn á teig Víkinga en þeir koma boltanum í burtu.
ÍBV
59. mín
InnHalldór Jón Sigurður Þórðarson
ÚtSesar Örn Harðarson
ÍBV
59. mín
InnRóbert Elís Hlynsson
ÚtFilip Stuparevic
Víkingur R.
56. mín
GYLFI MEÐ MARK FRÁ MIÐJU!!

Gylfi Þór Sigurðsson

Milan gefur til baka á Ara, markvörð ÍBV, sem ætlar að lúðra boltanum fram. Boltinn fer ekki lengra en á miðjuna þar sem Gylfi er og hann setur hann í autt markið frá miðju! 0-2!!!
55. mín
EYJAMENN Í FÆRI
Filip kom boltanum á Sesar úti vinstra megin sem kemur nær skoti en boltinn dettur fyrir Vicenta af varnarmanni Víkinga. Vicente tíar boltann fyrir Filip en skot hans af varnarmanni og framhjá.
Víkingur R.
51. mín
Víkingar komast yfir

Óskar Borgþórsson (stoðsending: Elías Már Ómarsson)

Elías Már með fyrirgjöf frá vinstri inn á teiginn á Óskar sem nær skallanum. Skallinn er aftur á ?óti mjög laus og ég set klárlega spurningamerki við Ara í þessu marki en inn fór hann og Víkinga leiða 0-1!!!
49. mín
Helgi með sendingu af vítateigshorninu sem fer svo bara rétt fram hjá markinu.
48. mín
SESAR nálægt því að sleppa í gegn!!!
Filip með flotta sendingu í gegn á Sesar sem er eiginlega sloppinn einn í gegn en eitt slæm snerting á boltann og þetta rennur út í sandinn.
47. mín
Bjarki Björn með langa sendingu fram ætlaða Filip en Ekroth er fyrstur á boltann og kemur honum á Aron Snæ.
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Þetta er farið í gang aftur!
45. mín
Frekar bragðdaufum fyrri hálfleik lokið. Víkingar hafa verið meira með boltann en lítið um alvöru færi. Eyjamenn eru meðp þétta vörn og skipulagðir. Vonandi fáum við skemmtilegri seinni hálfleik og einhver mörk!
45. mín
Felix með aukaspyrnuna á fjær. Sigurður Arnar fer upp í skallaboltann og er dæmdur brotlegur.
44. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Víkinga. Sesar er tekinn niður.
41. mín
SLÁIN HJÁ GYLFA
Gylfi með skotið fyrir utan teig sem fer af varnarmanni ÍBV og dettur ofan á slánna. Ari kom við boltann og Víkingur fær hornspyrnu.
39. mín
Ari næstum búinn að koma sér í bullandi vandræði. Leikur boltann áfram og Elías er næstum búinn að ná boltanum af honum en hann kemur boltanum í burtu að lokum.
36. mín
FÆRI HJÁ VÍKINGUM
Óskar fær boltann úti vinstra megin og fer fram hjá Milan og kemur með boltann út í teiginn á Helga sem skýtur í fyrsta en skotið er frekar slakt og fer framhjá og Víkingar héldu boltanum áfram inn á vellinum. Þetta rann svo út í sandinn.
35. mín
Sesar kemur sér inn í teig og virðist vera sleginn í andlitið óviljandi. Pétur dæmir ekki neitt.
32. mín
Óskar kemur með fyrirgjöf inn á teig ÍBV e Ari kemur úr og handsamar boltann.
29. mín
Felix geysist upp vinstri kantinn og reynir að koma boltanum inn á teig en Víkingar setja boltann í innkast.
28. mín
Gylfi reynir að finna Óskar upp vinstri kantinn en sendingin og löng og markspyrna.
27. mín
Helgi með fyrirgjöf frá vinstri en hún er slök og fer beint afturfyrir.
25. mín
Ármann með hættulega fyrirgjöf inn á teig Eyjamanna en þeir ná að koma boltanum í burtu.
24. mín
Ármann brýtur á Milan Tomic og akkurat á sama augnablik skorar Gylfi með góðu skoti en dómarinn búinn að flauta.
22. mín
VICENTE stelur boltanum af Aroni
Helgi sendi boltann til baka á Aron og Vicente nær boltanum af honum en snertingin er aðeins og löng og boltinn fer aftur fyrir.
22. mín
Gylfi með hornspyrnuna. Boltinn barst á Helga á vítateigslínunni sem tók skotið en það er framhjá.
21. mín
Víkingur fær hornspyrnu..Ármann reyndi að fara fram hjá Felix sem setti boltann aftur fyrir.
20. mín
Ekki mikið að frétta þessa stundina, mikið fram og til baka og lítið um færi.
16. mín
Felix með flotta fyrirgjöf alla leið á fjær á Milan sem reynir að setja boltann í fyrsta fyrir markið en Gunnar Vatnhamar endar á setja boltann aftur fyrir.
13. mín
Valdimar með fyrirgjöfina frá hægri. Óskar nær skallanum en hann er máttlaus og beint í hendurnar á Ara í marki Eyjamanna.
11. mín
Vicente fékk boltann fyrir utan teig Víkinga í fínni skotstöðu en Víkingar ná að koma sér fyrir skotið og hreinsa.
10. mín
Valdimar með fyrirgjöfina inn á teiginn en Eyjamenn hreinsa í horn.
9. mín
Víkingar eru mikið með boltann en virðast ekki finna smugu í gegnum þétta vörn ÍBV.
6. mín
Sesar reynir að setja Vicente í gegn en sendingin er of löng og beint í hendur á Aroni Snæ.
3. mín
2. mín
Bjarki Björn með fyrirgjöf frá hægri sem svífur yfir allan pakkan en Eyjamenn fá horn í kjölfarið, fór greinilega í leikmann Víkings.
1. mín
Þetta er farið af stað. Víkingar eiga upphafsspyrnuna og leika í átt að Týsvelli.
Fyrir leik
Innkastið verður í beinni í kvöld klukkan 21
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alex Freyr Hilmarsson fyrirliði ÍBV er meðal varamanna en hann er að snúa aftur úr meiðslum. Ármann Ingi Finnbogason er meðal byrjunarliðsmanna Víkings.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Eyjamenn töpuðu á Akureyri í síðustu umferð
Fyrir leik
Víkingar voru sjóðheitir í síðasta deildarleik og unnu Þór 6-0
Fyrir leik
Víkingar geta komist á toppinn... í bili að minnsta kosti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingar tóku bátinn í gær, laugardag, og æfðu hér í Vestmannaeyjum. Fyrir umferðina er Víkingur í 2. sæti en getur með sigri í Eyjum komið sér á toppinn, í það minnta um stundarsakir því topplið KR tekur ekki á móti Fram fyrr en klukkan 18:15. Víkingur hefur unnið fimm deildarleiki í röð en ÍBV hefur tapað fimm í röð og er í neðsta sæti með aðeins eitt stig.
Fyrir leik
Dómari: Pétur Guðmundsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Þung tíðindi bárust á dögunum
Fyrir leik
Sjöunda umferð Bestu deildarinnar spiluð í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
sunnudagur 17. maí Besta karla 13:00 ÍBV-Víkingur R. (Hásteinsvöllur) 16:00 Þór-ÍA (VÍS völlurinn) 17:00 FH-KA (Kaplakrikavöllur) 17:30 Keflavík-Stjarnan (HS Orku völlurinn) 18:15 Valur-Breiðablik (N1-völlurinn Hlíðarenda) 18:15 KR-Fram (Meistaravellir)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.