Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
   þri 02. júní 2026 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraká
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Eimskip
María er í dag leikmaður Djurgården í Svíþjóð.
María er í dag leikmaður Djurgården í Svíþjóð.
Mynd: Djurgården
Í leik með íslenska landsliðinu.
Í leik með íslenska landsliðinu.
Mynd: KSÍ
María Catharina Ólafsdóttir Gros hefur náð að vinna sér inn sæti í landsliðshópi kvenna og festa sig þar. Hún var fyrst valin í hópinn undir lok síðasta árs eftir að hafa leikið frábærlega með Linköping í Svíþjóð.

Hún er núna með hópnum í Póllandi þar sem framundan er mikilvægur leikur gegn Úkraínu í undankeppni HM.

„Þetta leggst mjög vel í mig," sagði María í samtali við Fótbolta.net í dag. „Það var góð æfing í morgun."

Ísland mætti Úkraínu fyrir stuttu í Laugardalnum og þá unnu okkar stelpur 1-0 sigur. Það er samt sem áður mjög mikilvægt að fá eitthvað út úr leiknum á föstudaginn. „Við megum alls ekki vanmeta þær vegna þess að þær eru með gott lið. Við þurfum að spila okkar leik."

Hvernig hefur verið fyrir þig að koma inn í þennan landsliðshóp?

„Bara mjög fínt. Allar stelpurnar eru yndislegar. Það er mjög gaman. Það er heiður, stolt og þakklæti. Ég er búin að vera lengi að berjast fyrir þessu. Þetta hefur verið draumurinn frá því ég var lítil," segir María. „Ég held að allir sem eru að spila fótbolta séu með þetta markmið."

Svíþjóð er annað heimili
María, sem er fjölhæfur sóknarmaður, var í janúar keypt til sænska félagsins Djurgården frá Linköping sem féll úr sænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. María átti gott tímabil með Linköping og var valin nýliði ársins hjá félaginu. Hún skoraði sjö mörk og lagði upp þrjú í 26 leikjum. Djurgården endaði í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.

„Ég elska Svíþjóð," segir María en móðir hennar er sænsk. Hún þurfti því ekki að aðlagast mikið þegar hún fór þangað til lands að spila fótbolta.

„Ég er hálfsænsk og mér líður smá heima þar. Þetta er annað heimili mitt. Mér líður eins og sænska deildin sé aðeins betri en íslenska deildin en svolítið svipaður fótbolti."

María var fyrir nokkrum vikum síðan talin upp á meðal tíu bestu kaupa sænsku úrvalsdeildarinnar í sænskum fjölmiðlum. Orðspor hennar fer stækkandi þar í landi. „Það er bara mjög gaman," sagði María að lokum en allt viðtalið er hægt að nálgast í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner