Fotbolti.net
Kristján Hrafn Kristjánsson
Lengjudeild karla
Kerecisvöllurinn
Ágætis veður, skýjað, smá gola og 8 gráður
Vestri
Vestri
2 - 0
Afturelding
Afturelding
Emmanuel Agyeman Duah 72'1 - 0Breki Þór Hermannsson 93'2 - 0
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Leik lokið!
Mjög mikilvægur sigur Vestra staðreynd!
Eftir rólegan fyrri hálfleik kom heldur betur fjör í þann seinni og seinni hálfleikurinn var mikil skemmtun og Vestri vinna 2-0 sigur á Aftureldingu.

Takk fyrir mig, skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í dag.
Vestri
93. mín
Þeir eru að klára þetta!!!

Breki Þór Hermannsson (stoðsending: Sergine Modou Fall)

Afturelding setja alla sína leikmenn upp og missa boltann, Fall fær boltan og sendir boltann upp á Breka sem er komin einn í gegn og gerði það sem Birkir náði ekki að gera og klárar leikinn.
92. mín
Bikir Eydal í dauðafæri!!!
Birkir vinnur boltann og dettur einn í gegn en setur hann framhjá.
90. mín
3 mínútur bætt við
90. mín
Afturelding eru að hóta marki!
Róbert Agnar á skot rétt yfir eftir klafs í teignum
88. mín
Afturelding liggja á Vestramönnum þessa stundina.
87. mín
Birkir Eydal að spila hættulegan leik
Birkir skellir sér í tæklingu á gulu spjaldi sem dómarinn flautar á, þetta var hættulegt.
84. mín
Afturelding í dauðafæri!!!
Afturelding taka horn á nær, Aron Elí vinnur skalla á nær stönginni og flikkar honum á fjær á Joacim Holtan sem er í dauðafæri en Marvin ver frábærlega frá honum.
Vestri
83. mín
Gult spjald

Birkir Eydal

Afturelding
81. mín
InnRóbert Agnar Daðason
ÚtBart Kooistra
Vestri
80. mín
InnBirkir Eydal
ÚtEmmanuel Agyeman Duah
Vestri
80. mín
InnSergine Modou Fall
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
77. mín
Vestri að sækja og sækja!
Albin Mörfelt með enn einn sprettinn upp og sendingu fyrir sem Georg Bjarnason rétt nær að komast fyrir áður en Duah nær skoti á markið.
76. mín
Dauðafæri!
Albin Mörfelt með góða takta á kantinum og kemur með fyrirgjöf á fjær á Duah sem nær að pota í boltan og setur hann á markið en Aron ver.
Vestri
72. mín
Vestri komast yfir!!!

Emmanuel Agyeman Duah (stoðsending: Breki Þór Hermannsson)

Albin Mörfelt sendir bolta fyrir sem Breki tekur niður og leggur á Duah sem á gott skot í þaknetið.
Afturelding
71. mín
InnTrausti Þráinsson
ÚtJón Vignir Pétursson
Vestri
71. mín
InnChriss-Albin Mörfelt
ÚtJohannes Selvén
Vestri
71. mín
InnGuðmundur Páll Einarsson
ÚtThibang Sindile Theophilius
65. mín
Vestri í dauðafæri!
Vestri vinnur boltan og leggja af stað í skyndisókn, Duah á sprett upp og sendir boltan fyrir á Breka sem á skot sem Arnar Daði ver frábærlega, eftir það berst boltinn á Þórð sem nær ekki að koma á markið.
64. mín
Afturelding eru að halda mikið í boltann og eru með yfirhöndina.
Afturelding
57. mín
InnGeorg Bjarnason
ÚtGunnar Bergmann Sigmarsson
55. mín
Afturelding fá horn.

Léleg útfærsla á stuttu horni.
53. mín
Bjartur Brimi á skot rétt framhjá.

Það er aðeins að lifna við þessum leik.
52. mín
Guðmundur Arnar með hættulegt skot rétt framhjá
48. mín
Fyrsta færi leiksins!
Vestri í góðri sókn sem endar á skoti frá Elmari á vítateigslínunni sem Aron Elí kemst fyrir og Arnar Daði handsamar.
Vestri
46. mín
InnJacob Stensson
ÚtGunnar Jónas Hauksson
Vestri gerir breytingu í hálfleik.
46. mín
Seinni hálfleikur farin af stað!
Vonandi fáum við mörk í þennan seinni hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Mjög rólegur hálfleikur að baki.
Hálfleikstölur hér á Ísafirði 0-0

Ekkert færi komið í leikinn og eitt skot á mark.
45. mín
+1 mínúta í uppbót
45. mín
Breki reynir skot frá miðju, en það var langt frá marki.
42. mín
Guðmundur Arnar með bjartsýnisskot lengst utan að velli, sem fór framhjá.
Vestri
36. mín
Vestri er að safna spjöldum hérna í fyrri hálfleik.

Elmar Atli Garðarsson

Elmar fékk spjald fyrir að byðja dómaran um spjöld á Aftureldingu.
34. mín
Birkir Már með skot langt framhjá.
32. mín
Bart Kooistra með hættulegan bolta fyrir en engin leikmaður Aftureldingar mættur inn á teig.
Vestri
31. mín
Gult spjald

Þórður Gunnar Hafþórsson

Stoppaði skyndisókn.
28. mín
Vestri fá sitt fyrsta horn.

Vestri taka það stutt, Gunnar Jónas sendir boltan fyrir en hann er slakur.
24. mín
Afturelding fá fyrstu hornspyrnu leiksins.

Þeir brjóta á Marvin og fá ekkert úr þessari spyrnu.
Vestri
23. mín
Gult spjald

Ibrahima Balde

Fór með hendina í andlitið á leikmanni Aftureldingar.
20. mín
Afturelding með yfirhöndina þessa stundina en skapa sér lítið sem ekkert.
17. mín
En ekkert færi komið í þennan leik, vonandi færist fljótlega fjör í leikinn.
10. mín
Leikurinn hefur verið mjög jafn fyrstu 10 mínúturnar.
3. mín
Birkir Már spilar á hægri kanti í dag eins og hann gerði gegn Stjörnunni, spurning hvort hann eigi aftur jafn góðan leik og síðast.
1. mín
Fyrsta skot leiksins kemur frá Andi Hoti og það fer langt yfir.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Joacim Holtan sparkar þessum risa leik í gang.
Fyrir leik
Allt að verða klárt!
Liðin koma hér inn á völlinn í tveimur prýðilegum línum og takast í hendur.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindinn
Bæði lið halda sínum liðum óbreyttum frá síðustu leikjum.

Vestri fengu Ægi í heimsókn á Þjóðhátíðardeginum núna í vikunni og unnu þar 3-2 sigur með mörkum frá Guðmundi Arnar Svavarssyni, Ibrahima Balde og Þórði Gunnari Hafþórssyni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Afturelding gerir ekki neinar breytingar á sínu liði eftir bikarsigurinn á Stjörnunni í síðustu viku. Cogic bræðurnir Elmar og Enes Þór eru báðir utan hóps í dag, en þeir voru í hóp gegn Stjörnunni og komu ekki við sögu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Afturelding frábærir
Afturelding hafa verið virkilega sterkir það sem af er tímabili, þeir byrjuðu brösulega í fyrstu tveimur leikjunum en eftir það hafa þeir verið á góðri siglingu. Í síðustu umferð fóru þeir í Kórinn og töpuðu 2-1 fyrir HK en voru líklega snöggir að gleyma því eftir að hafa unnið Stjörnuna 3-1 í stórskemmtilegum leik í Mósó í síðustu viku þar sem Megaviku-Birkir setti tvö og kom þeim í undarúrslit Mjólkurbikarsins í fyrsta sinn í sögu félagsins. Það verður spennandi að sjá hvernig Afturelding koma inn í þennan leik eftir stórleikinn í síðustu viku.

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Vestri á fínu skriði
Gengi Vestra hefur verið mikið upp og niður og það hefur verið erfitt að lesa í frammistöður liðsins. Þeir fara átt erftitt með að halda stöðuleika í deildinni og vilja ná að gegninu stöðugu og góðu. Vestri eru á ágætis siglingu og hafa unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum. Vestri sitja í 4. sæti Lengjudeildarinnar með 16 stig þegar 10. umferðin á sér stað en þeir hafa spilað leik meira en hin liðið í deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson




Fyrir leik
Spámaðurinn
Skagamaðurinn Andri Júlíusson, sem þjálfaði Kára síðustu ár, spáir í leikina að þessu sinni.

Vestri 1 - 1 Afturelding (14:00 á sunnudag)
Vestri verið að ná vopnum sínum og með 3 sigra í síðustu 4 en Vindurinn að fara vestur og þó það sé ekki megavika þá skorar hann þar og Breki Þór jafnar fyrir Vestramenn.

Fyrir leik
Dómaratríóið
Dómari leiksins í dag er Arnar Ingi Ingvarsson og aðstoðarmenn hans eru þeir Kristofer Bergmann og Breki Sigurðsson. Eftirlitsmaður KSÍ er Jón Magnús Guðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Lengjudeildinn kallar!
Komið þið sæl og blessuð og verið velkomin í beina textalýsingu á leik Vestra og Aftureldingar frá Kerecis-vellinum á Ísafirði. Leikurinn er partur af 10. umferð Lengjudeildarinnar og byrjar á slaginu 14:00.

Mynd: Samúel Samúelsson

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.