Fotbolti.net
19.06.26 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Andri Júl spáir í 10. umferð Lengjudeildarinnar

Andri, hér til hægri, með frænda sínum Sverri Mar Smárasyni.

Andri, hér til hægri, með frænda sínum Sverri Mar Smárasyni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spámaður
Tíunda umferð Lengjudeildarinnar fer af stað í kvöld. Skagamaðurinn Andri Júlíusson, sem þjálfaði Kára síðustu ár, spáir í leikina að þessu sinni.
Njarðvík 2 - 1 Leiknir (19:15 í kvöld)
Njarðvík eru ólíkindatól þessa dagana og koma virkilega særðir eftir síðasta leik, Leiknir búnir að vinna 3 í röð en verða stöðvaðir í Njarðvík - Birnir með markið fyrir Leikni og Arnór Valur assist.

Vestri 1 - 1 Afturelding (14:00 á sunnudag)
Vestri verið að ná vopnum sínum og með 3 sigra í síðustu 4 en Vindurinn að fara vestur og þó það sé ekki megavika þá skorar hann þar og Breki Þór jafnar fyrir Vestramenn.

ÍR 1 - 1 Völsungur (16:00 á sunnudag)
Hrikalega sterkur sigur Völsunga síðast og komnir með blóð á tennurnar og hrífast af Græna Gímaldinu og stela jafntefli.

Ægir 1 - 1 Þróttur R. (19:15 á sunnudag)
Þessi deild er sennilega sú mest ófyrirsjáanlega deild í heiminum, þarna fara Þróttarar á gras og ná ekki sínu flæði í leikinn en hanga á jafnteflinu.

Grótta 3 - 2 Fylkir (19:15 á sunnudag)
Virkilega hrifin af þessu Gróttuliði og þeir halda áfram að koma á óvart, Kjeld, Björgvin koma Gróttu í 2-0 en seiglan í Guðfinni og Slátraranum Hlyni Sævari jafna svo setur Tristan sigurmark í andlitið Fylkismönnum.

HK 1 - 2 Grindavík (19:15 á unnudag)
Vonbrigðalið HK heldur áfram að valda vonbrigðum og Ingi Sig kann vel við sig inni í hlýjunni og skorar 2.

Fyrri spámenn:
Sigurður Hrannar (4 réttir)
Baddi Borgars (3 réttir)
Amin Cosic (3 réttir)
Kristófer Ingi (2 réttir)
Markús Páll (2 réttir)
Halli Hróðmars (2 réttir)
Dagur Orri (2 réttir)
Adam Páls (2 réttir)
Sigurmark frá Tristan?

Sigurmark frá Tristan?

Canon

Mynd: Grótta

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding22+3245
2Þróttur R.22+2543
3Fylkir22+1340
4HK22+1238
5Njarðvík22+938
6Leiknir R.22+128
7ÍR22-628
8Grótta22-727
9Vestri22-1327
10Völsungur22-1226
11Grindavík22-1025
12Ægir22-449
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.