Fyrir leik
Keflavík
Fyrir leik
Víkingur R.
Það er heldur betur nóg um að vera hjá heimaliðinu um þessar mundir. Bullandi Evrópuverkefni og halda vel í toppsæti Bestu Deildarinnar. Þessi leikur er einmitt á milli Evrópuleiks við Hapoel frá Ísrael. Nóg af því, í síðasta leik Víkings í Bestu Deildinni kom fyrsta tapið á tímabilinu. Botnlið Þórs nýtti sér miklar róteringar á hóp Víkings og nýju andlitin hjá Þór skiluðu 2-1 sigri. Eina mark Víkings skoraði Daði Berg Jónsson sem er mættur aftur eftir meiðsli.
Þrátt fyrir tapið ættu ekki að vera neinar áhyggjur hjá Víking, þeir eru á toppnum með 40stig og eiga þennan leik í kvöld til góða á KR sem eru í 2.sæti með 35stig úr 16 leikjum. Við meigum eflaust aftur búast við einhverjum hreyfingum í byrjunarliðinu þar sem ferðalag til Ungverjalands og seinni leikurinn við Hapoel er framundan.

Dómarateymið í kvöld
Gunnar Oddur Hafliðason er á flautunni
Aðstoðardómararnir eru Guðmundur Ingi Bjarnason og Kristofer Bergmann
Fjórði dómarinn er Brynjar Þór Elvarsson
Dómaraeftirlitsmaður er Jón Sigurjónsson
Aðstoðardómararnir eru Guðmundur Ingi Bjarnason og Kristofer Bergmann
Fjórði dómarinn er Brynjar Þór Elvarsson
Dómaraeftirlitsmaður er Jón Sigurjónsson

Fyrir leik
Sú lang Besta í skjóli næturs
Hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Hamingjunni.
Hér á Víkingsvellinum kl. 20:00 mun leikur Víkings og Keflavíkur fara fram.
Hér á Víkingsvellinum kl. 20:00 mun leikur Víkings og Keflavíkur fara fram.

Þeir koma í þennan leik eftir mjög sterkan 5-2 sigur á ÍA. Þorlákur Breki Baxter, Stefan Ljubicic, Muhamed Alghoul skoruðu, síðan var Eiður Orri Ragnarsson með tvennu, en Víkingur keypti hann í sumar og spilar hann á láni restina af tímabilinu.
Það er ekki við öðru að búast en að Keflavík mæti stórir til leiks hér í kvöld, sigur Þórs á Víking væntanlega gefið öðrum liðum von um góð úrslit gegn Víkingsliðinu. Einnig er kvöldið í kvöld möguleiki til að hefna fyrir fyrri leik liðanna þar sem Keflavík tapaði 3-1 á heimavelli.