Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25102 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR08.10.2025, 15:30

Haukar næla í tvo úr sömu deild (Staðfest)

Haukur tilkynntu í dag um komu tveggja nýrra leikmanna til félagsins. Börkur Bernharð Sigmundsson og Kári Vilberg Atlason eru búnir að skrifa undir hjá félaginu. Börkur gerir þriggja ára samning við Hafnarfjarðarfélagið og Kári tveggja ára samning. Börkur kemur frá Kára en hann er fæddur árið 2005 og er uppalinn hjá ÍA.

FRÉTTIR08.10.2025, 15:00

Björgvin Brimi í Víking (Staðfest)

Björgvin Brimi Andrésson hefur hefur skrifað undir samning við Íslandsmeistara Víkings út árið 2029 en hann kemur frá uppeldisfélagi sínu, Gróttu. Björgvin Brimi á tvo leiki með KR (2024) í Bestu Deildinni en hann var þá aðeins 16 ára gamall. Björgvin lék með Gróttu á nýliðnu tímabili og skoraði 8 mörk í 20 leikjum fyrir liðið sem tryggði sér sæti í Lengjudeildinni á nýjan leik.

FRÉTTIR08.10.2025, 10:05

Rekinn eftir tíu leiki í starfi hjá Watford

Watford hefur ákveðið að reka Paulo Pezzolano sem stjóra eftir aðeins fimm mánuði og tíu leiki við stjórnvölinn. Guardian greinir frá þessu og segir að Javi Gracia snúi aftur. Pezzolano tók við Watford í maí og honum var tilkynnt að hann myndi ekki stýra æfingu liðsins í dag. Úrúgvæinn verður ellefti stjórinn sem Watford rekur frá því í byrjun árs 2020.

FRÉTTIR08.10.2025, 09:30

Króati tekur við Keflavík (Staðfest)

Keflavík er búið að ráða Króatann Vedran Medenjak sem þjálfara meistaraflokks kvenna. Hann hefur áður þjálfað yngri flokka hjá Val og Keflavík Vedran tekur við af Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur, hún lét af störfum eftir tímabilið sem var vonbrigði hjá Keflavík. Liðinu var spáð góðu gengi, efsta sæti deildarinnar, en niðurstaðan varð 8. sæti.

FRÉTTIR07.10.2025, 12:13

Láki áfram með ÍBV (Staðfest)

Þorlákur Árnason verður áfram þjálfari ÍBV á næstu leiktíð, en þetta kemur fram í tilkynningu ÍBV.

ÍBV var í botnsæti flestra spámanna fyrir tímabil en liðið hefur þegar tryggt veru sína í Bestu-deildinni á næsta ári og eru sem stendur í efsta sæti neðri hlutans.

Þorlákur tók við starfinu síðasta vetur eftir að Hermann Hreiðarsson lét af störfum en hann kom liðinu upp úr Lengjudeildinni í fyrra.

FRÉTTIR07.10.2025, 10:00

Cannavaro stýrir Úsbekistan á HM (Staðfest)

Fabio Cannavaro hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Úsbekistan og mun stýra liðinu á HM á næsta ári. Liðið tryggði sér sæti á HM í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada með jafntefli gegn Sameinuðu arabísku furstadæmunum en liðið tapaði aðeins einum af 15 leikjum sínum í undankeppninni. Cannavaro er 52 ára en hann hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn frá Dinamo Zagreb í apríl. Hann var stjóri liðsins í þrjá mánuði og stýrði 14 leikjum.

FRÉTTIR06.10.2025, 13:18

Jakob Héðinn í KA (Staðfest)

Jakob Héðinn Róbertsson er genginn í raðir KA frá Völsungi en hann hefur skrifað undir samning út tímabilið 2028. „Jakob hefur vakið verðskuldaða athygli með liði Völsungs og verður virkilega spennandi að fylgjast með framgöngu hans í gula og bláa búningnum," segir á heimasíðu KA.

FRÉTTIR06.10.2025, 07:00

Russell Martin rekinn (Staðfest)

Rangers er búið að reka Russell Martin úr þjálfarastöðu félagsins eftir hörmulega byrjun á nýju tímabili. Martin var ráðinn 5. júní og entist því nákvæmlega fjóra mánuði í starfi.

FRÉTTIR05.10.2025, 10:00

Steve Bruce rekinn (Staðfest)

Hinn 64 ára gamli Steve Bruce var í gær rekinn úr þjálfarastöðu sinni hjá Blackpool FC í þriðju efstu deild á Englandi, League One.

FRÉTTIR01.10.2025, 18:57

Rodrigo Muniz framlengir við Fulham til 2030 (Staðfest)

Brasilíski framherjinn Rodrigo Muniez hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Fulham til 20230 með möguleika á einu ári til viðbótar. Þetta kemur fram í tilkynningu Fulham í kvöld.

FRÉTTIR01.10.2025, 18:13

Bjarni Jó kveður Selfoss eftir fallið (Staðfest)

Bjarni Jóhannsson er hættur sem þjálfari Selfyssinga en liðið féll úr Lengjudeildinni á liðnu tímabili. Í tilkynningu frá Selfossi segir að leit sé hafin að nýjum þjálfara.

FRÉTTIR01.10.2025, 15:25

Venni áfram hjá Þrótti (Staðfest) - „Fer ekki frá hálfkláruðu verki"

Sigurvin Ólafsson, Venni, verður áfram hjá Þrótti, þetta staðfestir hann við Fótbolta.net. „Ég fer ekki frá hálfkláruðu verki," segir Venni. Hann var spurður hvort hann hefði tekið eitthvað samtal við FH sem er að gera þjálfarabreyingu, en Venni segir að hann hafi ekkert rætt við FH. Hann var með áframhaldandi samning við Þrótt, en bæði hann og félagið voru með ákvæði um að geta losnað undan þeim samningi. En það verður ekki gert.

FRÉTTIR30.09.2025, 12:33

Guðrún Jóna hætt með Keflavík (Staðfest)

Guðrún Jóna Kristjánsdóttir hefur látið af störfum sem þjálfari kvennaliðs Keflavíkur.

Guðrún tók við liðinu á miðju síðasta tímabili eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari en liðið féll úr Bestu-deild kvenna í fyrra.

Keflavík endaði í 8. sæti í Lengjudeild kvenna á nýliðnu tímabili, eftir að hafa verið spáð toppsætinu fyrir tímabil.

Guðrún var samningsbundin Keflavík til ársins 2026 en í tilkynningu félagsins segir að hún og stjórn Keflavíkur hafi komist að samkomulagi um að Guðrún myndi láta af störfum.

FRÉTTIR30.09.2025, 08:59

Vestri fær Jón Þór til að stýra í síðustu leikjunum (Staðfest)

Jón Þór Hauksson tekur við af Davíð Smára Lamude og mun stýra Vestra í þeim þremur leikjum sem eftir eru af leiktíðinni í Bestu deildinni. Frá þessu er greint á Vísi. Í Innkastinu sem kom inn í gær var einmitt giskað á að þetta væri líkleg lending eftir að tilkynnt var skyndilega að Davíð væri hættur með Vestra. Jón Þór er að góðu kunnur hjá Vestra en hann stýrði liðinu seinni hluta tímabilsins 2021 og gerði þá góða hluti. Liðið endaði í 5. sæti Lengjudeildar og komst í undanúrslit í bikar. Hann hætti svo um veturinn og tók við ÍA. Jón Þór hóf þetta tímabil sem þjálfari ÍA en var látinn fara í sumar eftir erfiða byrjun Skagamanna á tímabilinu.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.