Bjarni Jóhannsson er hættur sem þjálfari Selfyssinga en liðið féll úr Lengjudeildinni á liðnu tímabili. Í tilkynningu frá Selfossi segir að leit sé hafin að nýjum þjálfara.
Fréttatilkynning:
Knattspyrnudeild Selfoss og Bjarni Jóhannsson hafa komist að samkomulagi um að endurnýja ekki samning sinn.
Bjarni tók við liði Selfoss haustið 2023 og kom liðinu upp um deild með mjög svo sannfærandi hætti á sínu fyrsta tímabili, sumarið 2024. Þá stóð liðið uppi sem sigurvegari Fótbolti.net bikarsins sama ár og lyfti bikarnum á Laugardalsvelli. Niðurstaðan á nýafstöðnu tímabili voru vonbrigði en liðið leikur í 2. deild að ári.
„Ég vil koma á framfæri innilegum þökkum til Selfyssinga. Takk fyrir samstarfið og stuðninginn á þessum tíma sem ég hef verið þjálfari. Það hefur verið heiður að vinna með ykkur öllum og eftir sitja fullt af frábærum minningum. Ég óska ykkur alls hins besta í framtíðinni,” segir Bjarni.
Knattspyrnudeild Selfoss vill þakka Bjarna fyrir ánægjulegt samstarf og góðar stundir. Við óskum honum velfarnaðar í þeim verkefnum sem hann mun taka sér fyrir hendur.
Leit að nýjum þjálfara liðsins er þegar hafin.
Lengjudeild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Þór | 22 | 14 | 3 | 5 | 51 - 31 | +20 | 45 |
2. Njarðvík | 22 | 12 | 7 | 3 | 50 - 25 | +25 | 43 |
3. Þróttur R. | 22 | 12 | 5 | 5 | 43 - 37 | +6 | 41 |
4. HK | 22 | 12 | 4 | 6 | 46 - 29 | +17 | 40 |
5. Keflavík | 22 | 11 | 4 | 7 | 53 - 39 | +14 | 37 |
6. ÍR | 22 | 10 | 7 | 5 | 38 - 27 | +11 | 37 |
7. Völsungur | 22 | 7 | 4 | 11 | 36 - 52 | -16 | 25 |
8. Fylkir | 22 | 6 | 5 | 11 | 34 - 32 | +2 | 23 |
9. Leiknir R. | 22 | 6 | 5 | 11 | 24 - 40 | -16 | 23 |
10. Grindavík | 22 | 6 | 3 | 13 | 38 - 61 | -23 | 21 |
11. Selfoss | 22 | 6 | 1 | 15 | 25 - 44 | -19 | 19 |
12. Fjölnir | 22 | 3 | 6 | 13 | 32 - 53 | -21 | 15 |
Athugasemdir