FRÉTTIR02.06.2025, 13:10
Brentford hefur gengið frá kaupum á Romelle Donovan frá Birmingham. Hann kom fyrst á láni og lék með varaliði Brentford seinni hluta vetrar, hann fór fram úr væntingum og hefur Brentford nú klárað kaupin.
Donovan er átján ára sóknarsinnaður miðjumaður sem skrifar undir fimm ára samning við úrvalsdeildarfélagið.
Hann hefur spilað með U18 og U19 landsliðum Englands. Brentford endaði í 10. sæti úrvalsdeildarinnar í vetur.
FRÉTTIR02.06.2025, 10:31
Atalanta tilkynnti í gær að félagið hefði komist að samkomlagi við Gian Piero Gasperini um riftun á samningi ítalska stjórans við félagið. Hann er kvaddur með fallegri kveðju á heimasíðu félagsins.
Gasperini er 67 ára og hefur verið hjá Atalanta síðan 2016. Áður hafði hann stýrt Crotone, Genoa, Inter og Palermo á sínum ferli.
Undir stjórn Gasprini vann Atalanta Evrópudeildina á síðasta tímabili. Hann var valinn stjóri ársins í Seríu A bæði árið 2019 og árið 2020. Hjá Atalanta var hann með 52% sigurhlutfall í 438 leikjum og +340 í markatölu.
FRÉTTIR01.06.2025, 16:00
Þýska félagið Mainz festi kaup á framherjanum knáa Benedict Hollerbach frá Union Berlín í dag.
FRÉTTIR01.06.2025, 14:24
Íslenski landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson er genginn í raðir FC Köln frá Fortuna Düsseldorf.
FRÉTTIR01.06.2025, 13:45
Brighton gekk í dag frá kaupum á enska táningnum Tommy Watson frá Sunderland.
FRÉTTIR01.06.2025, 13:10
Manchester United hefur gengið frá kaupum á brasilíska sóknarmanninum Matheus Cunha frá Wolves.
FRÉTTIR01.06.2025, 11:07
Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson yfirgefur hollenska úrvalsdeildarfélagið NAC Breda þegar samningur hans við félagið rennur út í lok mánaðar. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er áhugi á Elíasi frá öðrum félögum í Hollandi sem og frá Englandi.
FRÉTTIR31.05.2025, 13:15
Everton hefur gengið frá kaupum á argentínska miðjumanninum Carlos Alcaraz frá Flamengo.
FRÉTTIR31.05.2025, 13:00
Enska félagið Plymouth Argyle hefur staðfest brottför austurríska þjálfarans Miron Muslic, en hann er tekinn við þýska B-deildarliðinu Schalke.
FRÉTTIR31.05.2025, 11:56
Óli Hrannar Kristjánsson er ekki lengur þjálfari Leiknis. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook síðu félagsins í dag.
Hann fékk sparkið eftir erfiða byrjun á tímabilinu og síðasti naglinn í kistuna var stórt tap gegn Grindavík á heimavelli í gærkvöldi.
Grindavík komst í 0-6 í leiknum en Leiknir klóraði í bakkann í restina. Þetta var annar leikurinn í röð sem Leiknir tapar og fær á sig sex mörk.
FRÉTTIR31.05.2025, 10:49
Tottenham hefur fest kaup á austurríska miðverðinum Kevin Danso frá franska félaginu Lens og á sama tíma staðfesti enska félagið að þeir Timo Werner, Fraser Forster, Sergio Reguilon, Pierre-Emile Höjbjerg og Alfie Whiteman væru farnir frá félaginu.
FRÉTTIR31.05.2025, 07:30
Spænski markvörðurinn David de Gea verður áfram hjá Fiorentina. Fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano fullyrðir þetta.
FRÉTTIR31.05.2025, 06:00
Brasilíski kantmaðurinn Marquinhos, sem skoraði eitt mark í sex leikjum með Arsenal, hefur verið keyptur til Cruzeiro í Brasilíu.
FRÉTTIR30.05.2025, 16:42
Liverpool sagði rétt í þessu frá því að hollenski vængbakvörðurinn Jeremie Frimpong væri genginn í raðir félagsins en hann er keyptur frá Bayer Leverkusen.
Liverpool greiðir 35 milljónir evra fyrir Frimpong eða um 29,5 milljónir punda.
Frimpong er 24 ára og er uppalinn hjá Manchester City. Hann kom til Manchester frá Amsterdam þegar hann var níu ára gamall. Árið 2019 hófst meistaraflokksferill hans, hann var hjá Celtic fyrstu árin en fór árið 2021 til Leverkusen þar sem hann hefur verið síðan.
Hann er hollenskur landsliðsmaður, á að baki tólf landsleiki. Hjá Leverkusen varð hann tvöfaldur meistari í fyrra og hjá Celtic vann hann alla skosku titlana tímabilið 2019-20. Hann var í liði ársins í Þýskalandi í fyrra og einnig í liði ársins í Evrópudeildinni.
FRÉTTIR30.05.2025, 12:35
AC Milan hefur ráðið Massimiliano Allegri í stjórastarfið. Hann hefur skrifað undir tveggja ára samning, með möguleika á framlengingu um ár til viðbótar.
FRÉTTIR30.05.2025, 08:00
Burnley hefur tekist að klifra aftur upp í ensku úrvalsdeildina og er félagið búið að ljúka við sín fyrstu kaup fyrir næsta úrvalsdeildartímabil.
FRÉTTIR29.05.2025, 22:00
Argentínska stórstjarnan Ángel Di María er búin að skrifa undir samning við uppeldisfélagið sitt Rosario Central.
FRÉTTIR29.05.2025, 16:15
Þýska félagið Werder Bremen staðfesti ráðningu á nýjum þjálfara í dag en Horst Steffen tekur við af Ola Werner.
FRÉTTIR29.05.2025, 15:15
Úkraínski miðjumaðurinn Yehor Yarmoliuk framlengdi í dag samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Brentford til ársins 2031.
FRÉTTIR29.05.2025, 12:27
Miðvörðurinn eftirsótti Jonathan Tah er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Þýskalandsmeistara FC Bayern.