Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 11:07
Brynjar Ingi Erluson
Elías Már yfirgefur NAC Breda (Staðfest)
Mynd: NAC Breda
Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson yfirgefur hollenska úrvalsdeildarfélagið NAC Breda þegar samningur hans við félagið rennur út í lok mánaðar. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er áhugi á Elíasi frá öðrum félögum í Hollandi sem og frá Englandi.

Elías Már er þrítugur sóknarmaður sem hefur spilað með NAC síðustu tvö ár.

Hann kom á frjálsri sölu frá franska félaginu Nimes og lagði sitt af mörkum til að koma NAC aftur upp í úrvalsdeildina.

Á þessum tveimur árum skoraði hann 23 mörk, þar af átta í úrvalsdeildinni á nýafstaðinni leiktíð.

Samningur hans rennur út um mánaðamótin og er það nú ljóst að hann mun ekki framlengja.

„Ég vil þakka félaginu og stuðningsmönnunum fyrir þennan frábæra tíma sem við höfum átt saman. Þegar ég kom hingað var markmiðið að koma félaginu aftur í úrvalsdeildina og það er frábært að hafa tekist það. Mér leið alltaf eins og heima hjá NAC og í Breda, og fannst ég alltaf vera velkominn. Ég óska félaginu og fólkinu alls hins besta í framtíðinni,“ sagði Elías við heimasíðu NAC.

Spennandi tímar framundan hjá Elíasi sem hefur einnig spilað með Excelsior, Gautaborg, Vålerenga og Keflavík.

Elías á 9 A-landsleiki með Íslandi, sá síðasti í 1-0 sigri á Írlandi í vináttuleik fyrir níu árum.


Athugasemdir
banner
banner
banner