Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Burnley búið að ganga frá tveimur kaupum (Staðfest)
Flemming í baráttu við Ryan Gravenberch í hollenska boltanum fyrir þremur árum.
Flemming í baráttu við Ryan Gravenberch í hollenska boltanum fyrir þremur árum.
Mynd: EPA
Edwards í leik með Sporting gegn Arsenal í Meistaradeildinni síðasta nóvember.
Edwards í leik með Sporting gegn Arsenal í Meistaradeildinni síðasta nóvember.
Mynd: EPA
Burnley hefur tekist að klifra aftur upp í ensku úrvalsdeildina og er félagið búið að ljúka við sín fyrstu kaup fyrir næsta úrvalsdeildartímabil.

Zian Flemming og Marcus Edwards hafa verið keyptir til félagsins en þeir léku með Burnley á láni frá Millwall og Sporting CP á nýliðinni leiktíð.

Flemming er 26 ára gamall og leikur sem sóknarsinnaður miðjumaður. Hann kom að 18 mörkum í 37 leikjum með Burnley á leiktíðinni.

Flemming gerir fjögurra ára samning og gæti reynst mikilvægur hlekkur á komandi leiktíð, eftir að hafa skorað 12 mörk í Championship deildinni og 2 í FA bikarnum.

Flemming er hollenskur, uppalinn hjá Ajax en hefur aldrei spilað fyrir landsliðið. Hann var lánaður til Burnley í fyrra með kaupskyldu.

Edwards er 26 ára kantmaður sem kom til Burnley á lánssamningi í janúar. Hann gerir fjögurra ára samning við félagið.

Edwards er enskur og ólst upp hjá Tottenham áður en hann flutti til Portúgal. Hann þótti gríðarlega mikið efni á sínum yngri árum og lék rétt tæpa 50 leiki fyrir yngri landslið Englands.

Hann er sagður vera gífurlega spenntur fyrir ensku úrvalsdeildinni.




Athugasemdir