Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   fös 30. maí 2025 16:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Frimpong til Liverpool (Staðfest) - „Mun ekki valda ykkur vonbrigðum"
Mynd: Liverpool
Liverpool sagði rétt í þessu frá því að hollenski vængbakvörðurinn Jeremie Frimpong væri genginn í raðir félagsins en hann er keyptur frá Bayer Leverkusen.

Liverpool greiðir 35 milljónir evra fyrir Frimpong eða um 29,5 milljónir punda.

Frimpong er 24 ára og er uppalinn hjá Manchester City. Hann kom til Manchester frá Amsterdam þegar hann var níu ára gamall. Árið 2019 hófst meistaraflokksferill hans, hann var hjá Celtic fyrstu árin en fór árið 2021 til Leverkusen þar sem hann hefur verið síðan.

Hann er hollenskur landsliðsmaður, á að baki tólf landsleiki. Hjá Leverkusen varð hann tvöfaldur meistari í fyrra og hjá Celtic vann hann alla skosku titlana tímabilið 2019-20. Hann var í liði ársins í Þýskalandi í fyrra og einnig í liði ársins í Evrópudeildinni.

Í tilkynningu Liverpool er sagt að Frimpong skrifi undir langtímasamning. „,Þetta gekk nokkuð auðveldlega. Liverpool kom og sagðist hafa áhuga og ég þurfti ekkert að hugsa þetta. Ég sagði við umboðsmennina að klára þetta, sama hvernig. Ég mun gefa Liverpool allt sem ég á, orkuna, vinnusemina og vonandi getum við unnið eitthvað saman, fagnað saman. Ég er mjög spenntur að vera hérna. Takk fyrir að samþykkja mig og ég mun ekki valda ykkur vonbrigðum," sagði Frimpong í sínu fyrsta viðtali eftir undirskriftina.

Englandsmeistararnir vinna nú að því að klára kaupin á Milos Kerkez og Florian Wirtz.


Athugasemdir
banner