Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
   fim 29. maí 2025 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ángel Di María aftur til uppeldisfélagsins (Staðfest)
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Argentínska stórstjarnan Ángel Di María er búin að skrifa undir samning við uppeldisfélagið sitt Rosario Central.

Di María er 37 ára gamall og kemur á frjálsri sölu eftir að hafa gert frábæra hluti með portúgalska stórveldinu Benfica, þar sem hann kom að 25 mörkum í 40 leikjum á nýliðinni leiktíð.

Di María hóf atvinnumannaferilinn með Rosario Central eftir að hafa alist upp hjá félaginu frá fjögurra ára aldri. Hann skipti yfir til Benfica sem táningur, fyrir 18 árum síðan, og átti eftir að leika fyrir stórveldin Real Madrid, Manchester United, PSG og Juventus áður en hann sneri aftur til Benfica og loks aftur heim til Rosario.

Rosario hefur verið að gera frábæra hluti í argentínska boltanum upp á síðkastið og gæti Di María styrkt liðið enn frekar.

Þessi fyrrum landsliðsmaður Argentínu kemur til félagsins með mikla reynslu, þar sem hann gerði 31 mark í 145 landsleikjum með Argentínu og vann bæði Copa América og HM fyrir þjóð sína.


Athugasemdir
banner