Spænski markvörðurinn David de Gea verður áfram hjá Fiorentina. Fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano fullyrðir þetta.
De Gea er búinn að samþykkja nýjan þriggja ára samning við ítalska félagið eftir að hafa verið lykilmaður á nýliðinni leiktíð.
De Gea hefði runnið út á samningi hjá Fiorentina í sumar og var AS Mónakó komið í viðræður við markmanninn, en hann kaus að vera áfram í Flórens.
De Gea er 34 ára gamall og gekk til liðs við Fiorentina á frjálsri sölu í fyrrasumar eftir 12 ár hjá Manchester United.
Uppfært: Fiorentina hefur staðfest samninginn.
@D_DeGea ???????? 2028 ??????#forzaviola #fiorentina pic.twitter.com/ox8ZFWa62H
— ACF Fiorentina (@acffiorentina) May 30, 2025
Athugasemdir