Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25134 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR11.12.2024, 17:03

Benoný Breki til Stockport (Staðfest)

Enska félagið Stockport County hefur staðfest kaup á Benoný Breka Andréssyni frá KR. Benoný skrifar undir þriggja og hálfs árs samning við Stockport. Kaupverðið er óuppgefið. Benoný er 19 ára og var í sumar markakóngur Bestu deildarinnar þegar hann skoraði 21 mark í 26 leikjum og setti markamet í Bestu deildinni. Hann er uppalinn hjá Gróttu og Breiðabliki, var fenginn til Bologna árið 2021 þar sem hann var í tvö ár áður en hann sneri heim og samdi við KR. Hann skoraði níu mörk tímabilið 2023 og ríflega tvöfaldaði þann markafjölda í sumar. Benoný er U21 landsliðsmaður og opnaði markareikninginn sinn þar í síðasta mánuði. Benoný þarf að fá atvinnuleyfi og svo munu félagaskiptin formlega ganga í gegn þegar félagaskiptaglugginn á Englandi opnar þann 1. janúar.

FRÉTTIR11.12.2024, 16:54

Ibrahima Balde í Þór (Staðfest)

Þórsarar hafa krækt í miðjumanninn Ibrahima Balde, mun hann leika með liðinu í Lengjudeildinni á næstu leiktíð. Balde er 28 ára og hefur leikið með Vestra undanfarin tvö tímabil. Hann hjálpaði Vestra að fara upp úr Lengjudeildinni 2023 og lék svo 23 leiki með liðinu sem hélt sér uppi í Bestu deildinni í sumar. Hann náði ekki samkomulagi við Vestra um nýjan samning en semur á Akureyri.

FRÉTTIR11.12.2024, 13:30

Hansen-Aaröen lánaður til Álaborgar (Staðfest)

AaB í Álaborg tilkynnti í morgun að félagið hefði fengið norska miðjumanninn Isak Hansen-Aaröen lánaðan út tímabilið. Hansen-Aaröen kemur frá Werder Bremen en hann var hjá Manchester United í þrjú og hálft ár, án þess að spila fyrir aðallið félagsins. Hann hefur spilað þrjá leiki fyrir Werder Bremen og er lýst sem sóknarhuguðum miðjumanni með sköpunarmátt.

FRÉTTIR10.12.2024, 17:22

Diego Gomez til Brighton (Staðfest)

Paragvæski landsliðsmaðurinn Diego Gomez verður leikmaður Brighton þegar glugginn opnar þann 1. janúar. Brighton mun fá þennan 21 árs miðjumann frá bandaríska MLS-liðinu Inter Miami þar sem hann var samherji Lionel Messi.

FRÉTTIR10.12.2024, 16:30

Naby Keita til Ungverjalands (Staðfest)

Miðjumaðurinn Naby Keita hefur skrifað undir samning við Ferencvaros í Ungverjalandi. Hann kemur þangað á láni frá Werder Bremen. Keita er aðeins 29 ára gamall og lék fyrir Liverpool í fimm ár áður en hann skipti yfir til Werder Bremen á frjálsri sölu í fyrrasumar.

FRÉTTIR10.12.2024, 13:00

Ariela Lewis alfarið til Keflavíkur (Staðfest)

Keflavík tilkynnti í dag að Ariela Lewis væri búin að skrifa undir samning út tímabilið 2026. Ariela kom til Keflavíkur í sumar á láni frá Aftureldingu og er nú alfarið gengin í raðir félagsins. Hún skoraði tvö mörk í fimm leikjum í Bestu deildinni seinni hluta sumars og hefur alls skorað 38 mörk í 60 leikjum á Íslandi.

FRÉTTIR10.12.2024, 07:30

Kjartan og Egill taka við ÍR (Staðfest)

ÍR er búið að ráða nýja þjálfara fyrir meistaraflokk kvenna eftir að Breiðhyltingar enduðu í neðsta sæti Lengjudeildarinnar í sumar.

FRÉTTIR09.12.2024, 17:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Ráðleggur engum að ráða sig

Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Óskar Hrafn Þorvaldsson með áhugaverð ummæli, þjálfari Arsenal fer í taugarnar á Gary Neville og Michael Antonio lenti í hræðilegu bílslysi á laugardaginnn.

FRÉTTIR09.12.2024, 16:06

Coote rekinn sem dómari í ensku úrvalsdeildinni (Staðfest)

David Coote hefur verið rekinn úr starfi sem dómari í ensku úrvalsdeildinni. Coote komst í fréttirnar eftir að myndband fór í dreifingu þar sem hann fór ófögrum orðum um Jurgen Klopp. Í kjölfarið birtist svo annað myndband þar sem hann sást neyta eiturlyfja. Einnig var fjallað um að hann hefði verið að plana eiturlyfjapartí á meðan hann var að starfa á leik.

FRÉTTIR09.12.2024, 13:30

Djenairo Daniels og Gustav Dahl verða ekki áfram hjá Fram (Staðfest)

Þeir Djenairo Daniels og Gustav Bonde Dahl verða ekki áfram hjá Fram. Daði Guðmundsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Fram, staðfestir það í samtali við Fótbolta.net. Daniels er framherji sem gekk í raðir Fram í sumarglugganum og skoraði tvö mörk í tólf leikjum með liðinu. Hann er 22 ára Hollendingur sem lék síðast með Leixoes í Portúgal. Samningur hans við Fram rann út í síðasta mánuði og verður ekki endursamið við hann.

FRÉTTIR09.12.2024, 11:27

Tveir Gróttumenn snúa heim (Staðfest)

Grótta hefur endurheimt þá Daða Má Patrek Jóhannsson og Einar Tómas Sveinbjarnarson fyrir komandi átök í 2. deild. Daði Már þótti mjög efnilegur á sínum tíma og varð árið 2016 yngsti leikmaðurinn til að spila með meistaraflokki í sögu Gróttu en Orri Steinn Óskarsson sló svo það met tveimur árum síðar. Hann yfirgaf Gróttu eftir tímabilið 2020 og hefur leikið með Augnabliki og Kríu síðan. <i>„Daði Már er 23 ára gamall og þótti einn efnilegasti knattspyrnumaður Gróttu í yngri flokkunum. Sumarið 2016 varð hann yngsti leikmaðurinn til að spila með meistaraflokki og sló þar við Viggó Kristjánssyni sem átti metið. Það var svo Orri Steinn Óskarsson sem tók metið af Daða tveimur árum síðar, rétt fyrir 14 ára afmælisdaginn sinn, og það met stendur enn. Á miðárinu í 2. flokki lenti Daði í þrálátum veikindum sem tengdust miltanu og gat hann því lítið æft og spilað í tvö heil ár. Um tvítugt náði hann heilsu á ný og hefur síðustu ár leikið 48 meistaraflokksleiki í 3.,4. og 5. deild."</I>

FRÉTTIR07.12.2024, 14:48

Vuk í Fram (Staðfest)

<p>Vuk Oskar Dimitrijevic er genginn til liðs við Fram eftir að samningur hans við FH rann út í síðasta mánuði. Hann skrifar undir tveggja ára samning.</p>

FRÉTTIR07.12.2024, 12:01

Dagur Ingi í HK (Staðfest)

<p>Dagur Ingi Axelsson er genginn til liðs við HK frá Fjölni en hann gerir þriggja ára samning við Kópavogsliðið.</p>

FRÉTTIR06.12.2024, 18:39

Jörgen Pettersen til ÍBV (Staðfest)

Jörgen Pettersen er að genginn í raðir ÍBV en hann kemur á frjálsri sölu þar sem samningur hand við Þrótt Reykjavík var runninn út. Hann skrifar undir eins árs samning í Vestmannaeyjum. Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV, ræddi við Fótbolta.net um Jörgen.

FRÉTTIR06.12.2024, 12:12

Haukur Leifur í HK (Staðfest)

HK tilkynnti í dag að Haukur Leifur Eiríksson væri orðinn nýr leikmaður félagsins. Fótbolti.net greindi frá því í vikunni að hann væri búinn að skrifa undir samning við félagið og gildir sá samningur út tímabilið 2027. Haukur er 22 ára gamall og er uppalinn hjá FH. Hann kemur til HK frá Þrótti Vogum þar sem hann hefur spilað síðustu fjögur tímabil. Fyrsta tímabilið, 2021, lék Haukur undir stjórn Hermanns Hreiðarssonar hjá Þrótti en Hemmi tók við HK eftir að tímabilinu í ár lauk. Haukur er fyrsti leikmaðurinn sem Hemmi sækir.

FRÉTTIR06.12.2024, 12:00

Afturelding sækir fjóra leikmenn (Staðfest)

Afturelding kynnir í dag fjóra leikmenn á fréttamannafundi sem haldinn er í Hlégarði í Mosfellsbæ. Leikmennirnir sem um ræðir eru Axel Óskar og Jökull Andréssynir, Oliver Sigurjónsson og Þórður Gunnar Hafþórsson. Axel Óskar (1998) er uppalinn hjá Aftureldingi og hélt til Englands eftir að hafa spilað með liðinu í 2. deild fyrir áratug síðan. Hann sneri aftur til Íslands síðasta vetur og samdi við KR. Miðvörðurinn rifti samningi sínum við KR í síðasta mánuði.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.