Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25087 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR22.06.2026, 16:29

Demichelis tekinn við Leipzig (Staðfest)

Argentíski stjórinn, Martin Demichelis, hefur verið ráðinn sem nýr stjóri þýska félagsins RB Leipzig. Demichelis kemur frá Malaga en hann tók við stjórnartaumunum á spænska liðinu í febrúar en tókst ekki að bjarga félaginu frá falli. Undir stjórn Demichelis sótti Malaga 18 stig úr 12 deildarleikjum þrátt fyrir það endaði liðið á að falla með 42 stig sem er nokkuð sjaldgæft.

FRÉTTIR18.06.2026, 18:30

Victor Munoz til Liverpool (Staðfest)

Spænski landsliðsmaðurinn Victor Munoz er genginn í raðir Liverpool frá Osasuna fyrir tæplega 35 milljónir punda. Þetta tilkynnir félagið á heimasíðu sinni.

FRÉTTIR18.06.2026, 11:07

Konate til Real Madrid (Staðfest)

Ibrahima Konate hefur gengið til liðs við Real Madrid og skrifar hann undir fjögurra ára samning við félagið. Hann kemur á frjálsri sölu frá Liverpool. Konate gekk til liðs við Liverpool frá RB Leipzig árið 2021 og spilaði hann 183 leiki fyrir félagið. Samningsviðræður hans og Liverpool strönduðu vegna launakrafa.

FRÉTTIR17.06.2026, 10:25

Freyr tekinn við Rosenborg (Staðfest)

Norska stórveldið Rosenborg í Þrándheimi hefur staðfest ráðningu á Frey Alexanderssyni sem nýjum aðalþjálfara félagsins. Freyr skrifaði undir samning til 2029 og mun formlega vera kynntur á fréttamannafundi á föstudag. <i>„Ég er virkilega stoltur og þakklátur fyrir þann mikla áhuga sem ég fékk frá stjórn félagsins. Okkar viðræður hafa verið hreinskilnar, opnar og heiðarlegar. Ég hef mikla trú á því að saman getum við komið sigursælasta félagi Noregs þangað sem það á heima,"</i> segir Freyr við heimasíðu félagsins.

FRÉTTIR16.06.2026, 16:31

Amorim tekinn við AC Milan (Staðfest)

Ruben Amorim hefur tekið við sem nýr stjóri AC Milan. Hann tekkur við af Massimiliano Allegri og skrifar undir tveggja ára samning við félagið með möguleika um árs framlengingu. Amorim var rekinn sem stjóri Man Utd í upphafi árs. Portúgalinn stýrði United alls í fjórtán mánuði en stóðst ekki væntingar. Þar áður gerði hann góða hluti með Sporting í heimalandinu. AC Milan endaði í fimmta sæti undir stjórn Allegri á nýliðnu tímabili og missti liðið af Meistaradeildarsæti eftir tap gegn Cagliari í lokaumferðinni. Allegri fékk reisupassann að tímabilinu loknu en hann verður kynntur sem nýr stjóri Napoli síðar í vikunni.

FRÉTTIR16.06.2026, 10:35

Rudiger framlengir við Real (Staðfest)

Antonio Rudiger hefur samþykkt nýjan eins árs samning við Real Madrid. Þýski landsliðsmiðvörðurinn hefði orðið samningslaus í lok mánaðar og stefndi á tíma ekki í að hann fengi nýjan samning hjá Real.

FRÉTTIR16.06.2026, 08:25

Renard tekinn við Túnis (Staðfest) - Rekinn frá Sádi-Arabíu rétt fyrir HM

Franski blaðamaðurinn Romain Molina greindi frá því að fótboltasamband Túnis hafi síðasta sólarhringinn átt í viðræðum við Herve Renard um að taka við karlalandsliðinu sem spilar á HM. Nú er sambandið búið að staðfesta að Renard hafi skrifað undir tímabundinn samning og stýri Túnis út heimsmeistaramótið.

FRÉTTIR15.06.2026, 19:10

Juventus kaupir Boga (Staðfest)

Ítalska félagið Juventus hefur virkjað kaupákvæði Fílabeinsstrendingsins Jeremie Boga, en félagið greiðir Nice um fimm milljónir evra til að gera skiptin varanleg. Hann skrifaði undir þriggja ára samning.

FRÉTTIR15.06.2026, 17:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Óléttupróf og bræði

Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Epísk auglýsing, bræði landsliðsþjálfarans og fréttir af brottrekstri Jökuls í Garðabæ eru á meðal þess sem má finna á topplista vikunnar.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.