Van Hecke til Tottenham (Staðfest) - „Draumur að rætast“

Mynd: Tottenham Hotspur

Mynd: Tottenham Hotspur
Tottenham hefur tilkynnt um komu hollenska varnarmannsins Jan Paul van Hecke, en hann kemur til félagsins frá Brighton.
Jan Paul van Hecke, 26 ára gamall miðvörður, hefur skrifað undir langtímasamning við Tottenham. Kaupverðið er talið nema um 52 milljónum punda og Brighton fær 20 prósent af næstu sölu.
Hollendingurinn hefur spilað frábærlega með Brighton síðustu ár og lék meðal annars undir stjórn Roberto De Zerbi í tvö ár, frá 2022 til 2024.
De Zerbi vildi ólmur endurnýja kynnin við Van Hecke og hefur nú fengið ósk sína uppfyllta.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem Tottenham sækir í glugganum, á eftir Marcos Senesi og Andy Robertson.
„Það er svakalegur heiður fyrir mig að verða leikmaður Tottenham og algjör draumur að rætast að semja við jafn stórt félag og þetta.“
„Ég er nú þegar með mjög sterk tengsl við stjórann og hlakka til að vinna með honum á ný. Micky van de Ven hefur líka sagt mér frábæra hluti um félagið, þannig að ég get ekki beðið eftir að hefjast handa.“
„Ég hef komið á Tottenham Hotspur-leikvanginn sem leikmaður andstæðinganna og nú hlakka ég til að ganga út á völlinn fyrir framan stuðningsmennina í Tottenham-treyjunni. Það verður sérstakt augnablik,“ sagði Van Hecke.

We are delighted to announce the signing of Jan Paul van Hecke ??
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) June 18, 2026
???? https://t.co/iNaRYrJTlB pic.twitter.com/yKo4Urcibn