Fotbolti.net
17.06.26 - 11:09
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Bernardo Silva til Real Madrid (Staðfest)

Bernardo Silva til Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Real Madrid

Real Madrid hefur tilkynnt um komu portúgalska miðjumannsins Bernardo Silva á frjálsri sölu frá Manchester City.
Viðræðurnar við hinn 31 árs gamla Bernardo tóku ekki langan tíma. Hann hafði verið orðaður við Barcelona og Atlético Madríd áður en Real Madrid kom inn á síðustu stundu og gekk frá samkomulagi á aðeins einum og hálfum sólarhring.

Hann skrifaði undir þriggja ára samning og er talið að hann muni þéna um 20 milljónir evra í árslaun.

Samkvæmt spænskum miðlum fékk hann 10 milljónir evra í undirskriftarbónus. Þá munu umboðsmaður hans, Jorge Mendes, og faðir Bernardo skipta með sér 10 milljónum evra fyrir þátt sinn í félagaskiptunum.

Real Madrid staðfesti komu hans á samfélagsmiðlum í dag og er hann annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við félagið í sumar, á eftir Marc Cucurella.

Á næstu dögum verða Ibrahima Konaté og Denzel Dumfries kynntir hjá félaginu og von er á frekari styrkingum þegar líður á sumarið. Það er því erilsamt sumar fram undan hjá Real Madrid, sem hefur ekki unnið stóran titil síðustu tvö tímabil.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.