Fotbolti.net
18.06.26 - 11:07
Kári Snorrason

Konate til Real Madrid (Staðfest)

Staddur á HM með franska landsliðinu.

Staddur á HM með franska landsliðinu.

Canon

Mynd: EPA

Ibrahima Konate hefur gengið til liðs við Real Madrid og skrifar hann undir fjögurra ára samning við félagið. Hann kemur á frjálsri sölu frá Liverpool.

Konate gekk til liðs við Liverpool frá RB Leipzig árið 2021 og spilaði hann 183 leiki fyrir félagið. Samningsviðræður hans og Liverpool strönduðu vegna launakrafa.
Konate sagði nýlega í færslu á Instagram að hann hefði verið mjög sorgmæddur yfir því að hafa ekki fengið tækifæri til að kveðja stuðningsmenn Liverpool þegar liðið spilaði síðasta leik sinn í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu gegn Brentford þann 24. maí.

José Mourinho er nýr stjóri Real Madrid og hefur hann fengið öflugan liðsstyrk í þeim Marc Cucurella, Bernardo Silva og nú Konate.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.