Leicester ræður nýjan stjóra (Staðfest)

Mynd: Leicester

Mynd: Leicester
Leicester City, sem mun spila í C-deildinni á Englandi á næsta tímabili, hefur ráðið skoska stjórann Russell Martin til næstu þriggja ára.
Martin stýrði síðast Rangers í Skotlandi en var látinn fara í október eftir slæma byrjun.
Hann kom Southampton upp í ensku úrvalsdeildina árið 2024 en var rekinn í desember sama ár eftir 5-0 tap gegn Tottenham.
Martin snýr nú aftur í enska boltann, en hann hefur gert þriggja ára samning við Leicester City, sem féll úr ensku B-deildinni á nýafstöðnu tímabili.
„Ég er hæstánægður með að vera hér og spenntur að hefja störf með leikmönnum og þjálfarateyminu. Þetta er félag með frábæra sögu, mikinn stuðning og háar væntingar. Ég get ekki beðið eftir að kynnast félaginu, borginni og stuðningsmönnunum,“ sagði Martin.

We are delighted to confirm the appointment of Russell Martin as Leicester City’s new First Team Manager ????
— Leicester City (@LCFC) June 15, 2026
Welcome to the Foxes, Russell!