Juventus kaupir Boga (Staðfest)

Mynd: Juventus

Mynd: Juventus
Ítalska félagið Juventus hefur virkjað kaupákvæði Fílabeinsstrendingsins Jeremie Boga, en félagið greiðir Nice um fimm milljónir evra til að gera skiptin varanleg. Hann skrifaði undir þriggja ára samning.
Hinn 29 ára gamli Boga kom að fimm mörkum í fimmtán leikjum á láni hjá Juventus frá Nice seinni hluta tímabilsins.
Hann var einn af ljósu punktum Juventus er liðið missti óvænt af sæti í Meistaradeild Evrópu.
Juventus átti möguleika á að gera skiptin varanleg fyrir 5 milljónir evra og hefur nú nýtt sér það.
Boga fór fram á að yfirgefa Nice í vetrarglugganum eftir að stuðningsmenn réðust á leikmenn í liðsrútu þeirra fyrr á tímabilinu. Hann fékk ósk sína uppfyllta og er nú ljóst að hann mun ekki snúa aftur til Frakklands.
Fílabeinsstrendingurinn spilaði áður með Atalanta og Sassuolo, og á yfir 150 leiki og 30 mörk í Seríu A.

Jeremie Boga has joined on a permanent deal! ??????
— JuventusFC ???????????????? (@juventusfcen) June 15, 2026
????? https://t.co/zNXxpBrlKo pic.twitter.com/PH3DUsEfr3