Fotbolti.net
01.01.15 - 10:42
Arnar Geir Halldórsson

Tony Pulis tekinn við WBA (Staðfest)

Tony Pulis er mættur aftur

Tony Pulis er mættur aftur

Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hefur tilkynnt um ráðningu á nýjum knattspyrnustjóra og mun Tony Pulis taka við liðinu eftir leik dagsins gegn West Ham.
Alan Irvine var látinn taka poka sinn eftir 2-0 tap gegn Stoke í síðustu umferð en WBA er í 16.sæti deildarinnar með 17 stig.

Tony Pulis þarf vart að kynna fyrir áhugamönnum um enska boltann en hann hefur verið lengi í bransanum. Lengst af stýrði Pulis Stoke en hann gerði frábæra hluti með Crystal Palace áður en hann hætti skyndilega í upphafi þessarar leiktíðar.

Fyrsti leikur WBA undir stjórn Pulis verður gegn Gateshead í FA bikarnum á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.