Fotbolti.net
15.11.26 - 17:25
Ívan Guðjón Baldursson

Mikilvægur hlekkur framlengir í Árbæ (Staðfest)

Mikilvægur hlekkur framlengir í Árbæ (Staðfest)
Canon

Mynd: Fylkir

Lengjudeildin
Aron Snær Guðbjörnsson er búinn að framlengja samning sinn við Fylki og verður því áfram í Árbæ næstu tvö ár.
Aron Snær er 22 ára gamall og er uppalinn hjá Fylki. Hann lék stórt hlutverk í sumar þar sem hann hjálpaði liðinu meðal annars að komast í undanúrslit Mjólkurbikarsins og í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar sem var leikinn á Laugardalsvelli fyrr í haust.

Hann skoraði 2 mörk í 20 leikjum í sumar og eru Árbæingar mjög ánægðir að halda honum innan sinna raða.

„Árbærinn hefur tekið enn meira ástfóstri við Aron Snæ eftir sumarið og hann er í miklum metum hjá stuðningsmönnum sem baráttuglaður leikmaður með frábæra útgeislun á vellinum. Hann er með kraftmikinn leikstíl sem stuðningsmennirnir elska. Við erum gríðarlega ánægð að sjá Aron áfram í appelsínugulu og hlökkum til að sjá hann á vellinum sem fyrst aftur með liðinu," segir Jón Þór Júlíusson, formaður meistaraflokksráðs karla.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.