Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   sun 01. febrúar 2026 21:29
Ívan Guðjón Baldursson
Atlético staðfestir Lookman - Vargas kemur líka
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Spænska stórveldið Atlético Madrid er að styrkja leikmannahópinn sinn þessa dagana og er búið að staðfesta læknisskoðun fyrir Ademola Lookman.

Nígeríski sóknarmaðurinn, sem átti stóran þátt í sigri Atalanta í Evrópudeildinni 2024, kemur til Atlético fyrir 40 milljónir evra, en hann á eingöngu eftir að standast læknisskoðun.

   01.02.2026 15:08
Atlético stelur Lookman undan nefinu á Fenerbahce


Atlético er einnig að krækja í tvítugan Obed Vargas úr röðum Seattle Sounders.

Vargas er varnarsinnaður miðjumaður með 3 A-landsleiki að baki fyrir Mexíkó þrátt fyrir ungan aldur.

Atlético borgar 10 milljónir evra fyrir Vargas en sú upphæð gæti hækkað umtalsvert með árangurstengdum greiðslum og þá heldur bandaríska félagið vænri prósentu af endursöluvirði leikmannsins.

Vargas gæti verið lánaður aftur til Bandaríkjanna til sumars, en hann hefur verið mikilvægur hlekkur í byrjunarliði Seattle á síðustu árum.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner
banner