Hollenski varnarmaðurinn Lutsharel Geertruida fer ekki til Liverpool á lokadögum janúargluggans.
Englandsmeistararnir virtust vera að landa þessum fjölhæfa leikmanni sem er hjá Sunderland á lánssamningi frá RB Leipzig sem gildir út tímabilið.
Liverpool náði samkomulagi við leikmanninn og reyndi svo að semja við Leipzig og Sunderland um að fá hann til sín, en það var ekki nægur tími til stefnu.
Nýliðar Sunderland hafa ekki tíma til að finna hæfan leikmann til að fylla í skarðið og samþykkja því ekki að binda enda á lánssamning Geertruida, sem hefur tekið þátt í 17 úrvalsdeildarleikjum það sem af er tímabils.
01.02.2026 12:17
Liverpool nær samkomulagi við Geertruida
Athugasemdir




