AC Milan gæti hætt við fyrirhuguð kaup sín á franska framherjanum Jean-Philippe Mateta eftir að samlandi hans Christopher Nkunku tjáði félaginu að hann vilji vera áfram í Mílanó þrátt fyrir áhuga frá AS Roma og Fenerbahce.
Milan hafði hugsað sér að senda Nkunku burt og fá Mateta inn í staðinn en núna virðist Nkunku ekki vilja skipta um félag eftir að hafa skorað fjögur mörk í síðustu fimm leikjum.
Ítalirnir eru því að íhuga að hætta við félagaskiptin þar sem þeir eru með alltof marga framherja. Niclas Füllkrug kom fyrr í janúar eftir að Nkunku og Santi Giménez voru keyptir inn síðasta sumar. Auk þeirra þriggja eru Rafael Leao og Christian Pulisic einnig að berjast um tvær framherjastöður í 3-5-2 leikkerfi Max Allegri.
Mateta yrði því sjötti leikmaðurinn í baráttunni um framherjasætin tvö.
Þessar fregnir koma sér illa fyrir ýmis önnur félagslið þar sem Crystal Palace er að ganga frá kaupum á Jörgen Strand Larsen úr röðum Wolves til að fylla í skarðið sem Mateta hefði skilið eftir sig.
Þá eru Úlfarnir að kaupa Adam Armstrong til að fylla í skarðið fyrir Larsen og gæti framherjakapallinn því klúðrast útaf Nkunku.
Palace var búið að samþykkja 35 milljón punda tilboð í Mateta, sem hefur verið markahæsti leikmaður liðsins á þjálfaratíð Oliver Glasner og er aðeins með eitt og hálft ár eftir af samningi.
01.02.2026 15:45
Mateta á leið í læknisskoðun hjá Milan
Athugasemdir



