Fulham tapaði gegn Man Utd í ótrúlegum leik á Old Trafford í dag.
Man Utd náði tveggja marka forystu en Fulham náði að jafna metin undir lokin en Benjamin Sesko tryggði Man Utd stigin þrjú með marki í uppbótatíma.
Emile Smith Rowe var svekktur með dómgæsluna í leikslok en mark var m.a. dæmt af liðinu vegna rangstöðu.

„Þetta er mjög pirrandi. Strákarnir börðust mjög mikið til að komast inn í leikinn. Það er pirrandi að fá á sig mark um leið og við jöfnum," sagði Smith Rowe.
„Svona er fótboltinn. Við getum ekki gert mikið, eina sem við getum gert er að standa okkur eins vel og við getum. Manni leið eins og nokkrar ákvarðanir hafi fallið gegn okkur en svona er fótboltinn."
Athugasemdir