Fotbolti.net
01.03.17 - 15:21
Magnús Már Einarsson

Arnar Bragi í Oddevold (Staðfest)

Arnar Bragi í Oddevold (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Arnar Bragi Bergsson hefur gengið til liðs við Oddevold í sænsku C-deildinni.

Arnar Bragi spilaði með Fylki síðari hlutann á síðasta tímabili en hann skoraði eitt mark í sjö leikjum í Pepsi-deildinni.

Hinn 23 ára gamli Arnar Bragi ólst upp í Svíþjóð en hann lék með ÍBV árin 2013 og 2014.
Árið 2015 spilaði Arnar með GAIS í sænsku B-deildinni.

Arnar er miðjumaður en hann mun nú leika með Oddevold á komandi tímabili í Svíþjóð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.