16.11.26 - 10:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þeir grísku taldir talsvert líklegri til sigurs í Aþenu

Úr leiknum á fimmtudag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Úr leiknum á fimmtudag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenska U21 landsliðið mætir því gríska í dag í seinni leik liðanna í umspili um sæti á EM næsta sumar.
Staðan í einvíginu er jöfn, 1-1, eftir fyrri leikinn sem fram fór í snjónum í Laugardal á fimmtudag.
Ísland hefur tvisvar sinnum komist í lokakeppni EM í flokki U21 liða en Grikkland hefur fjórum sinnum tekið þátt í mótinu. Það er hins vegar mun lengra síðan Grikkland komst síðast á lokamótið, en það var árið 2002. Ísland komst á lokamótið 2011 og svo aftur 2021.

TENGT EFNI
Lúlli: Fáum að sjá öðruvísi grískt lið
Veðbankinn Epicbet metur sigurlíkur Grikklands meiri en íslenska liðsins. Stuðullinn á grískum sigri á heimavelli Panathinaikos er 1,73. Stuðullinn á jafntefli er 3,71 og 4,71 á sigri Íslands. Það eru því taldar um 58% líkur á heimasigri í dag og 21% líkur á útisigri.
Daníel Tristan Guðjohnsen er talinn líklegastur til að skora í leiknum af ísensku leikmönnunum og Tómas Orri Róbertsson sá líklegasti til að fá spjald.
Á forsíðu Fótbolta.net er skoðakönnun í gangi og eins og staðan er núna telja 77% lesenda að Ísland sigri og fari á EM U21 liða.