Fotbolti.net
16.11.26 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

Heimir án fyrirliða síns í leik sem verður að vinnast

Heimir Hallgrímsson og Nathan Collins.

Heimir Hallgrímsson og Nathan Collins.

Canon

Mynd: EPA

Heimir Hallgrímsson og lærisveinar í írska landsliðinu taka á móti Kósovó í B-deild Þjóðadeildarinnar á morgun. Írska liðið verður að vinna leikinn til að enda í öðru sæti og tryggja sér sæti í umspili um að komast upp.
Heimir: Áttum að minnsta kosti skilið jafntefli
TENGT EFNI

Heimir: Áttum að minnsta kosti skilið jafntefli

Varnarmaðurinn Nathan Collins, fyrirliði írska landsliðsins, verður ekki með gegn Kósovó vegna hnémeiðsla. Collins meiddist undir lok leiksins gegn Austurríki í Linz á laugardag, þar sem Írar ??töpuðu 1-0, og er hann farinn aftur til félagsliðs síns, Brentford, til aðhlynningar.

Collins missti einnig af öllum fjórum leikjum liðsins í landsleikjaglugganum í september og október.

Jimmy Dunne, leikmaður Queens Park Rangers, tekur sæti Collins í hópnum fyrir leikinn gegn Kósovó.

„Það er ljóst að við þurfum að vinna leikinn; jafntefli nýtist okkur ekki neitt, og það er hugarfarið sem við förum með inn í leikinn," sagði Heimir Hallgrímsson á fréttamannafundi.
Collins í leik með Brentford.

Collins í leik með Brentford.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.