Fotbolti.net
16.11.26 - 12:50
Elvar Geir Magnússon

Frank gerir tveggja og hálfs árs samning við Palace

Thomas Frank.

Thomas Frank.

Canon

Mynd: EPA

Danski stjórinn Thomas Frank mun skrifa undir tveggja og hálfs árs samning við Crystal Palace og er búist er við að gengið verði frá málum í dag.

Frank, sem er fyrrum stjóri Tottenham og Brentford, mun stýra Palace gegn Coventry á laugardag.

Ernirnir telja að Thomas Frank sé maðurinn til að leiða félagið frá fallvandræðum. Félagið kannaði aðra möguleika, þar á meðal Sean Dyche fyrrverandi stjóra Everton og Nottingham Forest og Jens Berthel Askou stjóra Toulouse.

Frank hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn af Tottenham í febrúar.
Sage rekinn frá Palace eftir 16 leiki (Staðfest)
TENGT EFNI

Sage rekinn frá Palace eftir 16 leiki (Staðfest)

Palace hefur ekki farið vel af stað á tímabilinu undir stjórn Pierre Sage sem var látinn taka pokann sinn.

Liðið er óvænt á botni ensku úrvalsdeildarinnar með 7 stig eftir 10 umferðir og búið að ná í 5 stig eftir 4 leiki í Evrópudeildinni. Liðið er þó komið í 8-liða úrslit deildabikarsins og tekur þar á móti Sunderland.

Palace vann aðeins 5 leiki af 16 undir stjórn Sage og tapaði 8.
Frank gerir tveggja og hálfs árs samning við Palace
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.