Fotbolti.net
16.11.26 - 13:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Gerir gríðarlega mikið fyrir Aftureldingu að fá svona öflugan mann"

Simon Tibbling býr yfir mikilli reynslu og þekkir Bestu deildina.

Simon Tibbling býr yfir mikilli reynslu og þekkir Bestu deildina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir helgi tilkynnti Afturelding að sænski miðjumaðurinn Simon Tibbling væri kominn til félagsins frá Fram. Tibbling, sem er 32 ára, skrifar undir tveggja ára samning í Mosfellsbæ.

Tibbling var í liði ársins í Bestu deildinni á sínu fyrsta tímabili en á liðnu tímabili minnkaði hlutverk hans í liði Fram þegar leið á tímabilið. Höfuðmeiðsli settu einnig strik í reikninginn.

Fótbolti.net ræddi við þjálfara Aftureldingar, Magnús Má Einarsson, í dag og var hann m.a. spurður út í nýjasta leikmann félagsins.
Frábær ferill og þekkir Bestu deildina
„Það gerir gríðarlega mikið fyrir Aftureldingu að fá svona öflugan mann inn. Simon á frábæran feril að baki og þekkir Bestu deildina eftir að hafa spilað frábærlega með Fram undanfarin tvö ár. Simon passar fullkomlega inn í leikstíl Aftureldingar og við erum líka að fá geggjaðan karakter sem getur hjálpað öðrum í liðinu að verða betri," segir Maggi.

Tibbling varð hollenskur bikarmeistari með Groningen og danskur bikarmeistari með Bröndby. Þá varð hann Evrópumeistari með U21 liði Svía árið 2015.

Munu sækja frekari liðsstyrk
Afturelding hefur selt Óðin Bjarkason í KR og Jón Vigni Pétursson í Selfoss. Á liðnu tímabili var Andi Hoti á láni frá Val og Birkir Már Sævarsson hefur lagt skóna á hilluna. Þarf að fylla í þessi skörð?

„Já, það er alveg klárt að við munum sækja frekari liðsstyrk og sú vinna er í fullum gangi. Við erum með frábæran kjarna í liðinu. Við munum fylla í skörðin fyrir þá sem verða ekki áfram og gera meira en það. Við ætlum með stærri og sterkari hóp inn í Bestu deildina næsta sumar og erum opnir fyrir liðsstyrk í öllum línum."

Viðræður við Holtan gengið hægt
Norski framherjinn Joacim Holtan raðaði inn mörkum fyrir Aftureldingu á liðnu tímabili og hjálpaði liðinu að vinna Lengjudeildina. Hann er með lausan samning. Hvernig er samtalið við Joacim Holtan, verður hann áfram?

„Umboðsmenn Joacim fengu samningstilboð frá félaginu í september og í hreinskilni sagt hafa viðræður við hann gengið mjög hægt síðan þá. Við sjáum á næstunni hvort að hann verði áfram eða hvort við sækjum nýja framherja inn í hópinn," segir þjálfarinn.
Magnús Már er þjálfari Aftureldingar.

Magnús Már er þjálfari Aftureldingar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Holtan skoraði 16 mörk í Lengjudeildinni og fjögur í bikarnum.

Holtan skoraði 16 mörk í Lengjudeildinni og fjögur í bikarnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.