01.03.17 - 21:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Enrique hættir með Barcelona eftir tímabilið (Staðfest)

Enrique er að stíga til hliðar.

Mynd: Getty Images

Enrique er að stíga til hliðar.

Mynd: Getty Images
Luis Enrique mun stíga til hliðar sem stjóri Barcelona eftir tímabilið, en þetta staðfesti hann eftir 6-1 sigur liðsins á Sporting Gijon í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Enrique, sem er 46 ára gamall, er á sínu þriðja tímabili hjá Barcelona, en hann greindi frá því að hann myndi hætta með liðið eftir tímabilið, strax að leik loknum í kvöld.

Enrique vann Meistaradeildina sem hluta af þrennunni á fyrsta tímabili sínu og á síðasta tímabili tókst honum að vinna spænsku úrvalsdeildina og spænska bikarinn, semsagt tvennu.
Enrique er fyrrum leikmaður Barcelona, en hann þjálfaði B-lið félagsins frá 2008 til 2011. Hann tók svo við aðalliðinu eftir að hafa þjálfað hjá Roma og Celta Vigo árið 2014.
Barcelona er í ákveðnum eltingarleik við Real Madrid í baráttu um spænska meistaratitilinn. Barcelona er sem stendur á toppnum, tveimur stigum á undan erkifjendum sínum, en Real mun komast aftur á toppinn, vinni þeir leik sinn gegn Las Palmas sem er núna í gangi.

BREAKING NEWS: @LUISENRIQUE21 announces he will not continue as Barça manager next season. #FCBlive pic.twitter.com/pqYOnWxUy9
— FC Barcelona (@FCBarcelona) March 1, 2017