Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 01. mars 2021 11:16
Elvar Geir Magnússon
Hætti með Dele Alli vegna tölvuleikjaspilunar hans
Dele Alli og Ruby Mae.
Dele Alli og Ruby Mae.
Mynd: Instagram
Ensku götublöðin greindu frá því um helgina að ástarsambandi Dele Alli, leikmanns Tottenham, og Ruby Mae væri lokið.

Sagt er að Mae hafi fengið sig fullsadda af því hvað Dele eyðir miklum tíma í að spila tölvuleikinn Fortnite.

„Samband þeirra hefur verið stormasamt en því virðist nú vera lokið. Ruby er leið yfir niðurstöðunni en hún hefur fengið nóg af því hvað Dele gerir í frítíma sínum," segir ónafngreindur heimildarmaður The Sun.

Ruby er fyrirsæta sem hefur setið fyrir fyrir hjá Dolce & Gabbana og Chanel. Hún byrjaði að hitta Dele árið 2016 og þau hættu saman stuttlega 2018.

Samband þeirra kom fyrir augu fjölmiðla þegar Ruby huggaði leikmanninn eftir 2-1 tap gegn Íslandi á EM 2016. Þau voru í faðmlögum og sambandið varð opinbert.


Athugasemdir
banner
banner