15.09.26 - 14:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óli Stefán: Þeir hafa unnið tvö 2. deildar lið á útivelli

Álftanes vann sannfærandi sigur á Dalvík/Reyni í síðustu umferð.

Mynd: Álftanes

Selfoss tryggði sér sæti í Lengjudeildinni um helgina.

Mynd: Hrefna Morthens

Klukkan 16:30 tekur Selfoss á móti Álftanesi í undanúrslitaleik Gatorade-bikars Fótbolta.net. Selfoss tryggði sér sæti í Lengjudeildinni á laugardag með því að enda í 2. sæti 2. deildar en Álftanes vann 4. deildina hefur einungis tapað tveimur leikjum allt tímabilið.
Álftanes tapaði gegn Hamri, næstbesta liði 4. deildar í deildinni og Lengjudeildarliði Gróttu í Mjólkurbikarnum.
Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Selfoss, var til viðtals á miðlum félagsins fyrir æfingu liðsins í gær.

„Álftanes hefur gert vel, hefur unnið tvö 2. deildar lið, Fjölni og Dalvík/Reyni, á útivelli. Þannig þetta er mjög verðugt verkefni og verður gaman að takast á við Álftanes á okkar heimavelli."
„Það er sæti í Laugardalsvelli í boði. Við erum í keppni til að gera okkur gildandi, taka þetta alvarlega og vinna. Við stefnum á að klára þetta vel," segir Óli Stefán.
Hann var ánægður með stuðninginn sem Selfoss fékk í leiknum gegn KFG á laugardag.
„Ég var hrifinn af mætingunni, fólkinu og samfélaginu í síðasta leik. Það skipti virkilega máli að það var stuðningur; bylgjan lamdi á leikmönnum þegar á þurfti. Ég væri alveg til í að taka það inn í þessa keppni alla leið og klára þetta almennilega," segir þjálfarinn.
Undanúrslitin
16:15 Kormákur/Hvöt-Haukar (Blönduósvöllur)
16:30 Selfoss-Álftanes (JÁVERK-völlurinn)