Amorim gæti stigið frá borði ef slæmt gengi Man Utd heldur áfram - Bayern ætlar ekki að bjóða Sane hærri samning
   lau 01. apríl 2023 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Espanyol nálgast fallsætið - Fjögur töp í röð

Tveimur leikjum er lokið í spænsku deildinni í dag. Í hádeginu mættust Girona og Espanyol.


Espanyol var aðeins einu stigi frá fallsæti fyrir leikinn, staðan var markalaus í hálfleik en Girona náði forystunni snemma í þeim síðari.

Martin Braithwaite jafnaði metin þegar stundarfjórðungur var til leiksloka en Espanyol spilaði lokamínúturnar einum manni færri þar sem Sergi Gomes var rekinn af velli á 83. mínútu.

Þegar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma fékk Girona vítaspyrnu sem Cristhian Stuani skoraði úr og tryggði Girona stigurinn.

Girona er í 10. sæti með 34 stig eftir sigurinn en eins og fyrr segir er Espanyol stigi frá fallsæti en Valencia er í sætinu fyrir neðan og á leik til góða gegn Rayo Vallecano á mánudagskvöldið.

Athletic Bilbao og Getafe gerðu markalaust jafntefli en það voru góð úrslit fyrir Girona þar sem Bilbao er í 7. sæti aðeins þremur stigum á undan Girona.

Athletic 0 - 0 Getafe

Girona 2 - 1 Espanyol
1-0 Martinez Arnau ('53 )
1-1 Martin Braithwaite ('74 )
2-1 Christian Stuani ('88 , víti)
Rautt spjald: Sergi Gomez, Espanyol ('83)


Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 35 26 4 5 95 36 +59 82
2 Real Madrid 35 23 6 6 72 37 +35 75
3 Atletico Madrid 35 20 10 5 60 27 +33 70
4 Athletic 35 17 13 5 51 26 +25 64
5 Villarreal 35 17 10 8 61 47 +14 61
6 Betis 35 16 10 9 53 43 +10 58
7 Celta 35 14 7 14 55 54 +1 49
8 Vallecano 35 12 11 12 37 42 -5 47
9 Mallorca 35 13 8 14 33 40 -7 47
10 Osasuna 35 10 15 10 43 51 -8 45
11 Valencia 35 11 12 12 43 51 -8 45
12 Real Sociedad 35 12 7 16 32 41 -9 43
13 Getafe 35 10 9 16 31 34 -3 39
14 Espanyol 35 10 9 16 38 47 -9 39
15 Sevilla 35 9 11 15 39 49 -10 38
16 Girona 35 10 8 17 41 53 -12 38
17 Alaves 35 8 11 16 35 47 -12 35
18 Leganes 35 7 13 15 35 53 -18 34
19 Las Palmas 35 8 8 19 40 57 -17 32
20 Valladolid 35 4 4 27 26 85 -59 16
Athugasemdir