Damir Muminovic fyrirliði Grindavíkur var til viðtals við fulltrúa Fótbolta.net á Grindavíkurvelli nú fyrir stundu eftir 0-0 jafntefli Grindavíkur og Njarðvíkur. Damir sagði um leikinn.
Lestu um leikinn: Grindavík 0 - 0 Njarðvík
„Þetta var hörkuleikur frá fyrstu mínútu. Vindurinn stóð á annað marki og við lágum í fyrri hálfleik aðallega út af vindinum og svo þeir í seinni hálfleik. Þetta er kannski sanngjarnt eftirá en við hefðum mátt lauma einu marki inn.“
Eftir að Njarðvík hafði yfirhöndina í fyrri hálfleik gekk betur hjá Grindavík í þeim síðari. Hvað bjó þar að baki?
„Þegar við föttuðum að stíga hærra á þá þá gekk þetta betur. Þetta 5-3-2 kerfi þeirra það ætti að vera auðvelt að stíga á þetta og sérstaklega með vindi.“
Þrátt fyrir fína kafla beggja liða leit ekkert mark sem taldi dagsins ljós í dag. Hvað fannst Damir vanta?
„Aðeins meiri greddu í okkur og þá sérstaklega í seinni hálfleik. Mér fannst við frábærir að verjast frá fremsta manni til þess aftasta en þurftum aðeins meiri vilja til að koma boltanum í markið.“
Sagði Damir en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan






















