Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   fös 01. maí 2026 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spáin fyrir 2. deild karla: 4. - 1. sæti
Viðar Örn Kjartansson og Jón Daði Böðvarsson.
Viðar Örn Kjartansson og Jón Daði Böðvarsson.
Mynd: Selfoss
Víkingi Ólafsvík er spáð fjórða sæti.
Víkingi Ólafsvík er spáð fjórða sæti.
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Fjölni er spáð þriðja sætinu.
Fjölni er spáð þriðja sætinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðjón Pétur Lýðsson er nýr þjálfari Hauka.
Guðjón Pétur Lýðsson er nýr þjálfari Hauka.
Mynd: Haukar
Pablo Punyed verður spilandi aðstoðarþjálfari Hauka.
Pablo Punyed verður spilandi aðstoðarþjálfari Hauka.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Því er spáð að Selfoss vinni deildina.
Því er spáð að Selfoss vinni deildina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óli Stefán tók við Selfossi í vetur.
Óli Stefán tók við Selfossi í vetur.
Mynd: Selfoss
Í kvöld fer 2. deild karla af stað. Við á Fótbolta.net fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði.

Að lokum er komið að því að skoða liðin sem spáð er efstu fjórum sætunum. Miðað við þessa spá verður þetta þriggja hesta kapphlaup um að fara upp um deild.

4. sæti: Víkingur Ólafsvík (78 stig)
Lokastaða í fyrra: 8. sæti í 2. deild
Víkingi Ólafsvík er spáð í efri hluta 2. deildar þetta sumarið. Niðurstaðan í fyrra var áttunda sætið en það var ákveðið bakslag miðað við þróunina árin þar á undan, þar sem Ólsarar höfðu verið á uppleið og nálgast toppbaráttuna smám saman. Félagið hefur þó lengi verið eitt það áhugaverðasta á landinu og á að baki sögu þar sem það náði eftirminnilegum árangri, meðal annars þegar liðið lék í efstu deild. Undanfarin ár hefur markmiðið verið að byggja sig aftur upp en árangurinn í fyrra sýndi að það er ekki sjálfgefið að sú vegferð sé bein. Liðið hefur fest sig í sessi í 2. deild en hefur á sama tíma vilja til að fara hærra og blanda sér í baráttuna um efstu sætin. Spurningin er hvort Ólsarar nái að snúa aftur á rétta braut þetta sumarið og fari af alvöru krafti í baráttuna um að komast upp í Lengjudeildina. Þeir eru mættir með nýjan þjálfara, Tomasz Luba, sem spilaði á sínum tíma með Ólsurum í efstu deild.

Lykilmenn: Daði Kárason og Ingvar Freyr Þorsteinsson

Gaman að fylgjast með: Asmer Begic

Þjálfarinn segir - Tomasz Luba
„Ég tek á móti þessari spá með fullri virðingu og skilningi og þetta kemur mér ekkert á óvart. Mig grunaði að við myndum lenda í þessu sæti. Tímabilið leggst mjög vel í okkur. Ég tel að við séum með sterkan hóp og góða liðsheild. Á góðum degi erum við öflugt lið sem verður erfitt að spila á móti."

„Þessi deild verður mjög sterk og skemmtileg, með góðum liðum og þjálfurum. Við þurfum að vera agaðir, skipulagðir og klárir í alla leiki ef við viljum vera í toppbaráttu."

„Að lokum vil ég skora á alla stuðningsmenn Víkings Ólafsvíkur að hjálpa okkur í sumar. Ég hef trú á að mæting á völlinn verði góð og að þau verði okkar 12. maður. Strákarnir þurfa virkilega á stuðningi að halda í allt sumar, frá fyrsta leik til hins síðasta. Áfram Víkingur Ólafsvík!"


3. sæti: Fjölnir (105 stig)
Lokastaða í fyrra: 12. sæti í Lengjudeildinni
Fjölnir er spáð 3. sæti 2. deildarinnar eftir að hafa fallið niður í deildina í fyrsta sinn í langan tíma. Síðasta sumar var erfitt hjá Grafarvogsliðinu þar sem lítið gekk upp. Það hefur um tíma vantað að ná aftur upp þeim krafti sem áður einkenndi félagið og fallið gæti því reynst ákveðin vakning. Á sama tíma fylgir því alltaf ákveðin hætta að fara niður í 2. deild. Mörg félög hafa lent þar og átt erfitt með að vinna sig aftur upp, enda deildin bæði jöfn og krefjandi. Fjölnir fer þó inn í mótið sem eitt af stærri liðunum og með væntingar um að vera í toppbaráttunni. Spurningin er hvort liðið nái að bregðast rétt við aðstæðunum og nýta þetta sem tækifæri til að endurbyggja sig. Ef það tekst ætti Fjölnir að vera í baráttunni um efstu sætin, en ef ekki gæti dvölin í 2. deildinni orðið lengri en margir í Grafarvoginum vona.

Lykilmenn: Orri Þórhallsson og Viktor Andri Hafþórsson

Gaman að fylgjast með: Elmar Daði Davíðsson

Þjálfarinn segir - Gunnar Már Guðmundsson
„Við tökum þessari spá eins og öðrum spám með fyrirvara. Spáin breytir engu um okkar vinnu og okkar markmið. Það sem hin liðin sem spáð er upp eru með fram yfir okkur er meiri reynsla og fleiri mjög reyndir leikmenn. En við mætum í sumarið með lið sem vill ná árangri og skapa sér nafn í fótboltanum, öðlumst frekari reynslu með hverjum leik og munum eflast sem lið þegar líður inn í sumarið. Leikmenn er hungraðir í sanna sig og vilja koma félaginu strax upp aftur. Við tökum einn leik fyrir í einu og leggjum okkur alla í verkefnið, svo sjáum við í lok árs hvort að spárnar gangi eftir. Það er bara tilhlökkun fyrir komandi sumri hjá okkur."

2. sæti: Haukar (112 stig)
Lokastaða í fyrra: 7. sæti í 2. deild
Haukum er spáð öðru sæti og fara þeir í tímabilið með miklar væntingar á bakinu. Félagið hefur verið fastagestur í deildinni undanfarin ár án þess að ná að stíga upp, og síðustu tímabil hafa oft endað með vonbrigðum þar sem liðið hefur ekki blandað sér af alvöru í toppbaráttuna. Síðasta sumar var engin undantekning og hefur það kallað á breytingar. Nýr þjálfari er tekinn við, sterkir leikmenn - eins og Pablo Punyed og Einar Karl Ingvarsson - hafa bæst í hópinn og metnaðurinn virðist meiri en áður. Eftir svo mörg ár í 2. deild hlýtur markmiðið einfaldlega að vera að fara upp. Allt annað en alvöru atlaga að efstu sætunum yrði vonbrigði miðað við stöðuna í dag. Spurningin er hvort Haukar nái loksins að fylgja væntingum eftir og taka þetta skref, eða hvort sagan endurtaki sig enn eitt sumarið.

Lykilmenn: Pablo Punyed og Daði Snær Ingason

Gaman að fylgjast með: Ólafur Darri Sigurjónsson

Þjálfarinn segir - Guðjón Pétur Lýðsson
„Alltaf gaman að svona spám og við Haukamenn erum stoltir af því að það séu væntingar til okkar og við erum meðvituð um að Haukar sem félag á heima í 1. deild og nú er það okkar að sýna það. Við erum spenntir fyrir sumrinu og verður gaman að keppa við mörg góð lið sem spila í deildinni í sumar. Loksins er þetta fótboltatímabil að byrja og stuðningsmenn okkar geta farið að njóta þess að horfa á liðið sitt spila."

1. sæti: Selfoss (116 stig)
Lokastaða í fyrra: 11. sæti í Lengjudeildinni
Selfoss er spáð efsta sæti 2. deildarinnar eftir að hafa verið á nokkru flakki milli deilda undanfarin ár. Fyrir þetta sumar er mikil spenna fyrir liðinu. Jón Daði Böðvarsson og Viðar Örn Kjartansson eiga að setja Selfoss í algjöran sérflokk. Þeir eru stærstu nöfnin í deildinni, hafa báðir spilað lengi í atvinnumennsku og með landsliðinu. Þetta eru tvö af stærstu nöfnum sem hafa sést í þessari deild og það eitt og sér ýtir væntingunum upp í kringum liðið. Það verður þó ekki nóg að treysta á nöfnin ein og sér. Selfoss þarf að ná að byggja upp heild sem virkar. Ef það tekst er liðið líklegt til að vera í toppbaráttunni allt sumarið og fara beint aftur upp um deild. Það er alltaf ákveðin stemning í kringum Selfoss og ef allt smellur gæti þetta orðið sumar þar sem félagið finnur aftur taktinn. Eins og oft er sagt – það er alltaf sumar á Selfossi.

Lykilmenn: Jón Daði Böðvarsson og Viðar Örn Kjartansson

Gaman að fylgjast með: Eysteinn Ernir Sverrisson

Þjálfarinn segir - Óli Stefán Flóventsson
„Það er eðlilegt að okkur sé spáð ofarlega og við skorumst ekkert undan því að það séu væntingar í kringum liðið. Það er þó mikilvægt að hafa í huga að við komum inn í deildina með töluvert breytt lið frá því í fyrra, þar sem níu leikmenn eru farnir og einungis fjórir hafa bæst við."

„Hópurinn er ungur, meðalaldur um 23 ár og aðeins fjórir leikmenn eldri en 25 ára. Það skiptir okkur því miklu máli að hafa leikmenn eins og Jón Daða Böðvarsson og Viðar Örn Kjartansson í hópnum, sem gefa liðinu jafnvægi. Þeir setja miklar kröfur um fagmennsku í öllu sem við gerum og eru mjög duglegir að gefa af sér til hópsins sem er afar dýrmætt fyrir ungt lið."

„Þegar maður horfir yfir deildina þá lítur hún út fyrir að verða bæði jöfn og krefjandi, og við höfum fengið góða tilfinningu fyrir því í leikjum vetrarins."

„Fyrir okkur snýst þetta fyrst og fremst um að halda fókus á því sem við stjórnum – frammistöðu, vinnubrögðum og þróun liðsins. ?Við viljum hækka viðmiðin, auka kröfurnar og ná stöðugleika í góðri frammistöðu. Ef við gerum það vel þá skilar það okkur á góðan stað í þessari deild."

Slapp
banner
banner