Fotbolti.net
01.06.16 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson

Nuno Espirito Santo tekinn við Porto (Staðfest)

Nuno Espirito Santo tekinn við Porto (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Porto hefur verið í miklum þjálfaravandræðum á tímabilinu eftir að Julen Lopetegui var látinn fara í janúar.

Rui Barros stýrði liðinu í fjóra leiki áður en Jose Peseiro var ráðinn út tímabilið, en Porto endaði í þriðja sæti portúgölsku deildarinnar í ár, fimmtán stigum eftir toppliði Benfica.
Nuno Espirito Santo, fyrrverandi varamarkvörður Porto og þjálfari Rio Ave og Valencia, hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari Porto og staðfestir portúgalski þjálfarinn þetta sjálfur á Twitter.

Porto fer í undankeppni Meistaradeildarinnar á næsta tímabili og er mikil pressa á Nuno sem þarf að snúa gengi félagsins aftur á rétta braut.

Volto a casa! #SomosPorto pic.twitter.com/DdKdnoLfjq

— Nuno (@Nuno) June 1, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.