Fotbolti.net
16.11.26 - 08:35
Elvar Geir Magnússon

Collins, Bassey og McKennie orðaðir við Man Utd

Nathan Collins í leik með Brentford.

Nathan Collins í leik með Brentford.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Manchester United er áberandi í slúðurpakkanum á þessum ískalda mánudegi. Mauricio Pochettino tekur við stjórnartaumunum formlega í vikunni og er byrjaður að teikna upp óskalista fyrir janúar.
Nathan Collins (25), varnarmaður Brentford og Írlands, er á óskalista Manchester United en Liverpool og Tottenham hafa einnig sýnt honum áhuga. (Football Insider)

Varnarmaðurinn Calvin Bassey (26) sem leikur fyrir Fulham og Nígeríu er sagður vera eitt helsta skotmark Mauricio Pochettino hjá Manchester United fyrir janúargluggann. (Telegraph)

Manchester United vill gjarnan halda í Noussair Mazraoui (29) en AC Milan, Juventus og félög í Sádi-Arabíu hafa sýnt varnarmanninum áhuga. (Caught Offside)

Miðjumaðurinn Weston McKennie (28) sem leikur með Juventus, er á radarnum hjá Pochettino, sem hefur þjálfað hann hjá bandaríska landsliðinu. (Gazzetta dello Sport)

Manchester United, Paris St-Germain, Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Nico Paz (22), miðjumanni Como og Argentínu, en Real Madrid er með ákvæði í samningnum sem gerir þeim kleift að kaupa hann til baka. (Fichajes)

Napoli hefur áhuga á að fá til sín hollenska sóknarmanninn Joshua Zirkzee (25) frá Manchester United og enska kantmanninn Jamie Gittens (22) frá Chelsea í janúarglugganum. (Tuttomercato)

AC Milan vonast til þess að tengsl félagsins við brasilísku goðsögnina Kaka geti hjálpað þeim að fá landa hans, Endrick (20), á láni frá Real Madrid. (Gazzetta dello Sport)

Everton hefur augastað á brasilíska kantmanninum Samuel Lino (26), sem hefur komið að 21 marki í 33 leikjum fyrir Flamengo á tímabilinu. (Liverpool Echo)

Stuttgart hyggst ekki selja marokkóska miðjumanninn Bilal El Khannouss (22) þrátt fyrir áhuga frá Leeds United. (Football Insider)
Weston McKennie (til hægri).

Weston McKennie (til hægri).

Canon

Mynd: EPA

Nico Paz, leikmaður Como.

Nico Paz, leikmaður Como.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.