Breiðablik og Valur gerðu jafntefli þegar liðin mættust á Kópavogsvelli í gær. Allur ágóði af miðasölu á leikinn rann til Píeta samtakanna.
Thomas Mikkelsen skoraði tvö fyrir Blika og gerði landi hans, Patrick Pedersen, tvö mörk fyrir Valsmenn. Orri Sigurður Ómarsson og Kwame Quee voru einnig á skotskónum.
Leikurinn var sýndur í beinni á BlikarTV. Mörkin úr leiknum má sjá að neðan.
Pepsi Max-deildin hefst um miðjan næsta mánuð, en búast má við því að bæði þessi lið verði í toppbaráttu þar.
Breiðablik 3 - 3 Valur
0-1 Orri Sigurður Ómarsson ('10)
1-1 Thomas Mikkelsen ('15)
2-1 Thomas Mikkelsen ('25, víti)
2-2 Patrick Pedersen ('35, víti)
2-3 Patrick Pedersen ('65)
3-3 Kwame Quee ('90)
Athugasemdir