Fotbolti.net
01.06.21 - 16:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Andrea Rán til Houston Dash (Staðfest)

Andrea Rán til Houston Dash (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir er gengin til liðs við Houston Dash í bandarísku atvinnumannadeildinni frá Breiðabliki.

Þessu greinir Breiðablik frá á samfélagsmiðlum. Andrea lék sinn síðasta leik, í bili hið minnsta, með Blikum gegn Val síðasta fimmudag.

Fótbolti.net greindi frá þessum skiptum í gær:
Andrea Rán á leið til Bandaríkjanna í atvinnumennsku
Samkomulag náðist í vetur milli félaganna að Andrea myndi spila með Blikum út maí og færi svo til Houston.

Andrea, sem er 25 ára, fór á láni til Le Havre í Frakklandi í vetur en sneri aftur í Kópavoginn fyrir mót og spilaði fimm fyrstu deildarleikina með Blikum.

Hún hefur þrisvar orðið Íslandsmeistari og í þrígang bikarmeistari með liðinu.

Andrea er í landsliðshópnum sem tilkynntur var í dag. Framundan eru tveir æfingaleikir gegn Írlandi.

Úr tilkynningu Breiðabliks:
Andrea Rán byrjaði að æfa hjá Breiðabliki sex ára gömul og hefur á ellefu ára löngum meistaraflokksferli spilað 188 leiki og skorað 31 mark fyrir Breiðablik í öllum keppnum.

Andrea Rán, sem á ellefu A-landsleiki að baki, hefur síðustu ár verið í námi í Bandaríkjunum á veturna og spilað með Blikum á sumrin, en nú tekur hún næsta skref í atvinnumannadeildinni vestanhafs.

Breiðablik óskar Andreu góðs gengis á nýjum vettvangi í einni af sterkustu deildum heims. Við hlökkum til að fylgjast með henni á stóra sviðinu.

Takk fyrir okkur Andrea 💚🏆
Andrea Rán til Houston Dash (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.