Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 17:31
Elvar Geir Magnússon
Al-Hamadi og Iqbal með Írak á HM
Zidane Iqbal.
Zidane Iqbal.
Mynd: EPA
Ali Al-Hamadi, sóknarmaður Ipswich, og Zidane Iqbal, sem var á sínum tíma á mála hjá Manchester United eru báðir í HM hópnum hjá Írak.

Al-Hamadi flúði Írak með fjölskyldu sinni þegar hann var barn og varð fyrsti fótboltamaðurinn frá Írak til að spila í ensku úrvalsdeildinni þegar hann lék þar með Ipswich 2024.

Iqbal fæddist í Manchester og var hjá yngri liðum Manchester United. Hann lék einn Meistaradeildarleik með aðalliðinu en hefur verið hjá Utrecht í Hollandi síðan 2023.

Írak verður í riðli með Noregi, Frakklandi og Senegal á HM. HM hópur Íraks:

Markverðir: Fahad Talib (Al-Talaba), Jalal Hassan (Al-Zawraa), Ahmed Basil (Al-Shorta).

Varnarmenn: Hussein Ali (Pogon Szczecin), Manaf Younis, Ahmed Yahya, Mustafa Saadoon (Al-Shorta), Zaid Tahseen (Pakhtakor), Rebin Sulaka (Port), Akam Hashim (Al-Zawraa), Merchas Doski (Viktoria Plzen), Zaid Ismail (Al-Talaba), Frans Putros (Persib).

Miðjumenn: Amir Al-Ammari (Cracovia), Kevin Yakob (Aarhus GF), Zidane Iqbal (Utrecht), Aimar Sher (Sarpsborg), Ibrahim Bayesh (Al-Dhafra), Ahmed Qasem (Nashville SC), Youssef Amyn (AEK Larnaca), Marko Farji (Venezia).

Sóknarmenn: Ali Jassim (Al-Najma), Ali Al-Hamadi (Ipswich), Ali Yousef (Al-Talaba), Aymen Hussein (Al-Karma), Mohanad Ali (Dibba).

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner