25.07.26 - 16:54
Brynjar Ingi Erluson
Guðrún skoraði er Hammarby tyllti sér á toppinn

Guðrún skoraði þriðja deildarmarkið á tímabilinu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Guðrún Arnardóttir komst á blað er Hammarby vann öruggan 4-0 sigur á Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Varnarmaðurinn kom Hammarby yfir strax á sjöttu mínútu þegar hún skoraði eftir hornspyrnu.
Þetta var þriðja deildarmark hennar á tímabilinu. Hammarby bætti við tveimur mörkum fyrir hlé og gerði svo endanlega út um leikinn snemma í síðari hálfleik.
Sigdís Eva Bárðardóttir sat allan tímann á varamannabekk Norrköping.
Hammarby er komið á topp deildarinnar með 31 stig, einu stigi meira en ríkjandi meistarar Häcken. Norrköping er í 12. sæti með níu stig.
Eyrún Embla Hjartardóttir var í byrjunarliði varaliðs Häcken sem gerði 1-1 jafntefli við Enskede í sænsku B-deildinni. Þetta var fyrsta stig liðsins á tímabilinu eftir tíu töp í röð.
Varalið Häcken situr á botni deildarinnar, átta stigum frá öruggu sæti.