25.07.26 - 16:46
Brynjar Ingi Erluson
Crystal Palace steinlá fyrir nýliðum C-deildarinnar

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sambandsdeildarmeistarar Crystal Palace steinlágu fyrir Bromley, 3-0, í æfingaleik í dag.
Bromley vann D-deildina í vor og leikur því í C-deildinni í fyrsta sinn á komandi tímabili. Crystal Palace kemur hins vegar inn í tímabilið eftir að hafa fagnað fyrsta Evróputitlinum í sögu félagsins.
Palace var langt frá því að vera með sitt sterkasta lið en leikmenn á borð við Matheus Franca, Will Hughes, Jaydee Canvot, Eddie Nketiah, Romain Esse, Brennan Johnson, Tyrick Mitchell og Borna Sosa komu þó við sögu.
Næst tekur Como-bikarinn við hjá Palace en liðið mætir þar Lens og Famalicao á næstu dögum. Nokkrir lykilmenn snúa aftur til æfinga á næstunni og ætti liðið því að vera mun betur mannað í þeim leikjum.
Everton gerði markalaust jafntefli við Bolton og Newcastle United gerði 1-1 jafntefli við utandeildarlið Gateshead. Eina mark Newcastle var sjálfsmark Ben Williams, miðjumanns Gateshead.