Vladimir Petkovic, þjálfari alsírska landsliðsins, hefur valið 26-manna hóp sinn fyrir heimsmeistaramótið.
Rayan Ait-Nouri, leikmaður Manchester City, er að sjálfsögðu í hópnum ásamt leikmönnum á borð við Nabil Bentaleb, Ramy Bensebaini, Ibrahim Maza, Luca Zidane, Houssem Aouar, Amine Gouiri, Riyad Mahrez og Anis Hadj Moussa.
Það vekur hins vegar athygli að Ismael Bennacer, leikmaður AC Milan á Ítalíu, er ekki valinn. Hann eyddi síðustu leiktíð á láni hjá Dinamo Zagreb í Króatíu.
Baghdad Bounedjah, fjórði markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins, er ekki heldur valinn og ekki heldur þeir Ilan Kebbal og Himad Abdelli, sem spila báðir í frönsku úrvalsdeildinni.
Markvörðurinn Abdelatif Ramdane er 27. maðurinn inn í hópinn ef það koma upp meiðsli.
Hópurinn:
Markverðir: Oussama Benbot (USM Alger), Melvin Masstil (Stade Nyonnaise), Luca Zidane (Granada)
Varnarmenn: Achraf Abada (USM Alger), ?Rayan Ait Nouri (Manchester City), Zinedine Belaid (JS Kabylie), Rafik Belghali (Verona), Ramy ?Bensebaini (Borussia Dortmund), Samir Chergui (Paris FC), Jaouen Hadjam (Young Boys Bern), Aissa Mandi (Lille), Mohamed Amine Tougai (Esperance)
Miðjumenn: Houssem Aouar (Al Ittihad), Nabil Bentaleb (Lille), Hicham Boudaoui (Nice), Fares Chaibi (Eintracht Frankfurt), Ibrahim Maza (Bayer Leverkusen), Yassine Titraoui (Charleroi), Ramiz Zerrouki (FC Twente)
Sóknarmenn: Mohamed Amine Amoura (VfL Wolfsburg), Nadir Benbouali (Gyori ETO), Adil Boulbina (Al-Duhail), Fares ?Ghedjemis (Frosinone), Amine Gouiri (Olympique de Marseille), Riyad ?Mahrez (Al Ahli), Anis Hadj Moussa (Feyenoord ?Rotterdam)
???????????? OFFICIAL: Algeria squad for the 2026 World Cup. pic.twitter.com/MBge4N0Oly
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 31, 2026
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!

