Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 12:35
Innkastið
Sterkasta lið 9. umferðar - Sjáðu draumamark Emils
Óskar Borgþórsson skoraði þrennu.
Óskar Borgþórsson skoraði þrennu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Atlason.
Emil Atlason.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Kennie Chopart.
Kennie Chopart.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Víkingar halda þriggja stiga forystu í Bestu deildinni eftir að hafa unnið 5-1 sigur gegn Val á Hlíðarenda.

Óskar Borgþórsson fór á kostum og skoraði þrennu, Karl Friðleifur Gunnarsson var með mark og stoðsendingu og Sölvi Geir Ottesen er þjálfari umferðarinnar.



Luke Rae skoraði glæsilegt mark og var valinn maður leiksins þegar KR vann KA 5-3. Aron Sigurðsson skoraði tvö mörk og Halldór Snær Georgsson átti geggjaða vörslu og kom í veg fyrir að KA jafnaði í 4-4.

Kennie Chopart hélt sýningu þegar Fram vann Breiðablik 4-3 í stórskemmtilegum leik. Skoraði tvö mörk og hefði hæglega getað skorað fleiri. Erik Tobias Sandberg varnarmaður ÍA er í Sterkasta liðinu eftir 1-0 útisigur Skagamanna gegn FH-ingum.

ÍBV vann sinn fyrsta sigur í sumar þegar liðið vann óvæntan 6-1 sigur gegn Keflavík. Sigurður Arnar Magnússon er í úrvalsliðinu, Bjarki Björn Gunnarsson átti magnaðan leik og var með fjórar stoðsendingar og þá skoraði Róbert Elís Hlynsson tvö mörk.

Emil Atlason skoraði draumamark (sem sjá má hér fyrir neðan) þegar Stjarnan vann langþráðan sigur, 3-1 útisigur gegn Þór.






Fyrri úrvalslið:
   11.05.2026 12:00
Sterkasta lið 6. umferðar - Galið og óhemju sókndjarft

   04.05.2026 10:05
Sterkasta lið 5. umferðar - Vatnhamarinn í þriðja sinn

   28.04.2026 09:00
Sterkasta lið 4. umferðar - Aron kominn með fast sæti

   24.04.2026 08:00
Sterkasta lið 3. umferðar - KR í draumaferð til Eyja

   18.04.2026 00:25
Sterkasta lið 2. umferðar - Krummi stórkostlegur

   13.04.2026 00:10
Sterkasta lið 1. umferðar - Sautján ára á miðjunni með Gylfa

Innkastið - Farið yfir geggjaða umferð með Gulla Jóns
Slapp
banner