Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   lau 18. apríl 2026 00:25
Fótbolti.net
Sterkasta lið 2. umferðar - Krummi stórkostlegur
Krummi var maður leiksins í sigri KR.
Krummi var maður leiksins í sigri KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valdimar Þór Ingimundarson.
Valdimar Þór Ingimundarson.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Önnur umferð Bestu deildarinnar var leikin í heild sinni á föstudag en hér er Sterkasta lið umferðarinnar, í boði Steypustöðvarinnar.

KR-ingar eru með fullt hús á toppi Bestu deildarinnar eftir 5-2 sigur gegn Þór. Hrafn Tómasson, Krummi, var valinn maður leiksins. Hann var öflugur varnarlega og stjórnaði spili KR-inga. Aron Sigurðarson skoraði og átti mjög öflugan leik. Finnur Tómas Pálmason er einnig í liði umferðarinnar.

Auk KR er það Stjarnan sem hefur unnið báða leiki sína en þeir bláu lögðu FH 3-2 í spennandi leik. Ibrahim Turay var gríðarlega öflugur hjá Garðbæingum og réttilega valinn maður leiksins. Guðmundur Baldvin Nökkvason var meðal markaskorara.



Valdimar Þór Ingimundarson var maður leiksins hjá Víkingi sem vann 2-0 útisigur gegn KA. Sölvi Geir Ottesen er þjálfari umferðarinnar.

Lúkas Logi Heimisson og Hólmar Örn Eyjólfsson skoruðu mörk Vals sem vann kærkominn sigur á ÍBV 2-1. Vuk Oskar Dimitrijevic skoraði tvö mörk fyrir Fram sem vann Keflavík 3-1.

Þá vann Breiðablik 1-0 sigur gegn ÍA í hörkuleik þar sem markvörðurinn Anton Ari Einarsson og miðvörðurinn Ívar Örn Árnason þóttu bestu menn vallarins.

Sjá einnig:
   13.04.2026 00:10
Sterkasta lið 1. umferðar - Sautján ára á miðjunni með Gylfa

Besta deildin
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 2 2 0 0 8 - 4 +4 6
2.    Stjarnan 2 2 0 0 6 - 4 +2 6
3.    Fram 2 1 0 1 6 - 4 +2 4
4.    Víkingur R. 2 1 0 1 3 - 1 +2 4
5.    Breiðablik 2 1 0 1 2 - 1 +1 4
6.    Valur 2 1 1 0 3 - 3 0 3
7.    Þór 2 1 1 0 4 - 6 -2 3
8.    FH 2 0 1 1 3 - 4 -1 1
9.    ÍA 2 0 1 1 3 - 4 -1 1
10.    ÍBV 2 0 1 1 2 - 3 -1 1
11.    Keflavík 2 0 2 0 3 - 6 -3 0
12.    KA 2 0 2 0 2 - 5 -3 0
Slapp
banner