Fotbolti.net
04.05.26 - 10:05
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Sterkasta lið 5. umferðar - Vatnhamarinn í þriðja sinn

Gunnar Vatnhamar (til vinstri) í leiknum gegn Keflavík.

Gunnar Vatnhamar (til vinstri) í leiknum gegn Keflavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR-ingar eru einir á toppi Bestu deildarinnar eftir 4-1 útisigur gegn Val í toppslag fyrir framan fullan völl á Hlíðarenda.

Stefán Árni Geirsson nýtti tækifærið vel og skoraði tvö mörk, Amin Cosic gerði varnarmönnum Vals lífið leitt og var meðal markaskorara. Þá er varnarmaðurinn Finnur Tómas Pálmason að byrja tímabilið virkilega sterkt og var öflugur gegn Val.

Óskar Hrafn Þorvaldsson er þjálfari umferðarinnar en KR-ingar eru með fullt hús á toppnum.
Sjáðu mörkin: KR og KA sigruðu í grannaslögunum
TENGT EFNI

Sjáðu mörkin: KR og KA sigruðu í grannaslögunum



Íslandsmeistarar Víkings þurftu að hafa fyrir hlutunum í Keflavík en unnu á endanum 3-1 útisigur. Gunnar Vatnhamar skoraði og var öflugur í vörninni en færeyski landsliðsmaðurinn er í þriðja sinn í liði umferðarinnar. Daníel Hafsteinsson kom frískur inn af bekknum og breytti leiknum, skoraði síðasta markið.

Kristófer Ingi Kristinsson skoraði og lagði upp í 2-1 útisigri Breiðabliks gegn ÍBV. Blikar fóru með öll stigin þrjú í þyrluna.

Kennie Chopart skoraði tvívegis fyrir Fram sem vann ótrúlegan 4-3 útisigur gegn FH eftir að hafa verið 3-1 undir. Töframaðurinn Fred Saraiva var líka geggjaður, maður leiksins með þrjár stoðsendingar.

ÍA vann sinn fyrsta sigur í deildinni þegar liðið vann verðskuldað í Garðabænum. Markús Páll Ellertsson, ein af nýju stjörnum deildarinnar, skoraði fyrra markið í 2-1 sigri Skagamanna. Maður leiksins var Haukur Andri Haraldsson. Orkumikill á miðjunni og kom með tvær stoðsendingar í leiknum.

Stubbur, Steinþór Már Auðunsson, er fulltrúi KA sem vann Akureyrarslaginn gegn Þór. Hann var öflugur í rammanum. Þetta var fyrsti sigur KA-manna í deildinni.

Fyrri úrvalslið:
Sterkasta lið 4. umferðar - Aron kominn með fast sæti
TENGT EFNI

Sterkasta lið 4. umferðar - Aron kominn með fast sæti


Sterkasta lið 3. umferðar - KR í draumaferð til Eyja
TENGT EFNI

Sterkasta lið 3. umferðar - KR í draumaferð til Eyja


Sterkasta lið 2. umferðar - Krummi stórkostlegur
TENGT EFNI

Sterkasta lið 2. umferðar - Krummi stórkostlegur


Sterkasta lið 1. umferðar - Sautján ára á miðjunni með Gylfa
TENGT EFNI

Sterkasta lið 1. umferðar - Sautján ára á miðjunni með Gylfa

Markús Páll Ellertsson í Garðabænum.

Markús Páll Ellertsson í Garðabænum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stubbur sterkur.

Stubbur sterkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.12+3534
2KR11+1325
3Fram11+523
4Breiðablik11+919
5Valur12-416
6ÍA10-315
7Keflavík11-712
8Stjarnan12-511
9ÍBV11-511
10KA11-610
11Þór11-197
12FH11-136
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.