Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 01. júlí 2019 20:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Adrien Rabiot til Juventus (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Það er staðfest að Adrien Rabiot er orðinn leikmaður Ítalíumeistara Juventus. Hann kemur til félagsins á frjálsri sölu frá franska stórliðinu Paris Saint-Germain.

Hann verður kynntur til leiks hjá félaginu á blaðamannafundi á morgun.

Rabiot neitaði að skrifa undir nýjan samning við Paris Saint-Germain á síðasta tímabili og var í kjölfarið kastað í frystikistuna hjá franska félaginu.

Rabiot, sem er 24 ára, var meðal annars orðaður við Manchester United og Barcelona, en hann kaus að fara til Juventus.

Hann er annar leikmaðurinn sem kemur á frjálsri sölu til Juventus í sumar. Miðjumaðurinn Aaron Ramsey kom einnig á frjálsri sölu frá Arsenal, en Juventus hefur fengið marga sterka leikmenn frítt síðustu árin.



Athugasemdir
banner
banner
banner